Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 49
PV Helgin
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 69
31.DESEMBER
Kampavín og meira kampavín
Skemmtistaðurinn Oliver er einn af þessum stöð-
um sem fer sívaxandi sem djammstaður á gamlárs-
kvöld og í ár er það ekki öðruvísi. „Nú þegar er fjöldi
manns búinn að panta borð. En miðað við fjög-
urra manna borð, líter af sterku áfengi og kampa-
vín er það 30 þúsund. Á borðunum eru síðan grím-
ur, hattar og miðar inn á staðinn. Við erum í raun
að gefa kampavínsflöskuna," segir Amar Þór Gísla-
son, rekstrarstjóri Café Olivers. „Suzy og Elvis verða
í glamúrgírnum og svo verða ýmsar uppákomur."
Afhverju eigum viö að mœta?
„Því við vitum að það verður troðið. Oliver er eini
staðurimi á gamlárskvöld sem fólk á að mæta á."
Hvencer veröur húsiö opnað?
Klukkan 12.45.
Hvað kostar?
„2500 krónur við innganginn." Nánari upplýs-
ingar hjá Arnar Þór Gíslasyni í síma 821 8500.
1.JANÚAR -
Sushi og hallæristónlist
Sóley Ástudóttir hjá EMM Schooi
of Makeup eöiir til heljarinnar nýárs-
gleði á Qbar. Allir eru velkomnir og byrj-
ar fjörið snemma. Plötusnúðurimi Mar-
geir mun sjá um að skemmta fólki með
tónlist sinni en hann hefur lofað að spila
eins hallærislega músík og mögulegt er.
1 boði verður sushi og elegant fordrykk-
ur og opið verður til klukkan þrjú um
nóttina. Þessi veisla er tilvalin fýrir þá
sem ætla að taka því rólega á gamlárs-
kvöld og langar að lyfta sér upp á fyrsta
degi ársins.
Afhverju eigum við að mœta?
„Geðveik sushi-veisla og hallærisleg-
asta tónlistin í bænum."
Hvencer veröur husið opnað?
„Stundvíslega klukkan 19.30“
Hvaö kostar?
„Tvö þúsund krónur." Upplýsingar
fást á tölvupósti hjá soley@emm.is.
31.DESEMBER
Rapp-veisla ársins
„Þetta er Blautt malbik-kvöld á Prikinu, en með okkur núna verða þeir Bent, Erp-
ur og Sesar A. Þetta verður gangsta partí ársins," segir Dóri DNA stoltur. „Við erum
búnir að halda þessi kvöld í sumar og haust og verður þetta grand finalíið. Danni
Deluxe verður að þeyta skífunum, Erpur og Sesar A, bróðir hans, taka rappsyrpu. {
kvöld munum við gera upp árið í þætti okkar Blautt Malbik á X-inu. Ekki missa af
því."
Afhverju eigum við aö mœta?
„Annars verðið þið drepin."
Hvenœr verður húsið opnaö?
„Prikið opnar á miðnættí en strákarnir búast ekki við neinum fyrr en allir eru
búnir að kyssa fjölskyldumeðlimi sína."
Hvað kostar?
„Það er frítt inn."