Freyr - 01.03.1958, Blaðsíða 3
LIV. ARGANGUR NR. 6
REYKJAVIK, MARZ 1958.
Fjórðungsmót Landssambands
Hestamannafélaga í Egilsstaðaskógi
Undanfarin ár hefur Landssamband Hesta-
mannafélaga gengizt fyrir því, að halda
fjórðungsmót á hverju ári. Er til þess ætlast,
að þau fari fram í öllum landsfjórðungum
til skiptis. Síðast liðið sumar var fjórðungs-
mótið haldið í Austfirðingafjórðungi.
Hestamannafélagið „Freyfaxi“ á Fljóts-
dalshéraði sá um undirbúning og fram-
kvæmd mótsins ásamt Búnaðarsambandi
Austurlands, en samkvæmt ákvæðum bú-
fjárræktarlaga er heimiit að sameina sýn-
ingu á kynbótahrossum á fjórðungsmótum,
enda sjái viðkomandi Búnaðarsamband um
allan undirbúning er þeirri sýningu við-
kemur. Var svo gert í þetta sinn.
Mótið var haldið í Egilsstaðaskógi, laug-
ardaginn og sunnudaginn 20. og 21. júlí.
Báða dagana var veður einmuna gott, logn
og sólskin og skilyrði öll hin beztu til þess
að mótið yrði vel sótt. Þetta var í fyrsta
skipti, sem slíkt fjórðungsmót hefur verið
haldið i þessum fjórðungi. Mótið var allvel
sótt og komu menn lengst að með hesta úr
Hornafirði og Eyjafirði. Eyfirðingar komu
með stóran hóp hesta eða um 80. Með komu
sinni settu þeir svip á mótið og gerðu það
enn skemmtilegra. í hrossahóp þeirra var
margt góðra gæðinga, sem hestamenn fýsti
að eignast, enda varð úr hjá þeim nokkur
hrossasala.
Margt manna var á mótinu bæði úr fjórð
ungnum og öðrum landshlutum. Eins og
fyrr er sagt stóð mótið yfir í tvo daga. Fyrri
daginn störfuðu dómnefndir við sýningu
kynbótahrossa og góðhesta. Luku dóm-
nefndirnar störfum fyrir hádegi á sunnu-
dag.
Dómnefnd góðhesta skipuðu eftirtaldir
menn: Björn Gunnlaugsson, Reykjavík,
Bogi Eggertsson, Reykjavík og Þorsteinn
Jónsson, kaupfélagsstjóri, Reýðarfirði.
Dómnefnd kynbótahrossa:
Gunnar Bjarnason, hrossaræktarráðu-
nautur oddamaður dómnefndar, ráðunaut-
arnir Páll Sigurbjörnsson og Leifur Kr. Jó-