Freyr - 01.03.1958, Qupperneq 7
FREYR
91
ekki svo hefur hann sínar aðferðir til að
setja allt á sinn stað. Kýr, sem eitt sinn
hefur haft leghverfingu, er alltaf hætt í
annað. sinn.
í þriðja lagi eru fastar hildir. Hildirnar
eru jafnan fastar á fjölgreindum æðaflétt-
um þar sem næringin hefur borizt frá blóði
móðurinnar til fóstursins. Við burðinn
slitnar naflastrengurinn, og eflaust skeður
það á ákveðinni stund þegar blóðþrýsting-
urinn er þannig, að hildirnar losna auðveld-
lega frá greindum æðafléttum. Það er að
minnsta kosti víst, að mest er hætta á föst-
um hildum þegar fæðingin gengur mjög
ört.
Þegar á allt er litið má fullyrða, að því
betur fer allt í sambandi við burðinn sem
frávik frá náttúrulegri rás viðburðanna eru
minni. Að sjálfsögðu ber að hindra að fæð-
ingin standi of lengi. Gangi allt óeðlilega
seint er hætta á að kálfurinn deyi inni í
kúnni, en hvenær, verður aldrei sagt með
vissu. Reynslan kennir mönnum að ætla
hvenær sú hætta vofir yfir.
Vitjun dýralæknis.
Þeir, sem hafa ekki reynslu, en sjá að
ekki er allt eins og vera ber, skulu ná til
dýralæknis og leita hans ráða eða fá hann
til hjálpar, heldur en að prófa það, sem
kann að hafa alvarlegar afleiðingar. Ann-
ars er engin ástæða til að standa ráðalaus
og bíða tímum saman eftir dýralækni. Það
er nóg að gera. í fyrsta lagi þarf að hita
vatn. Þrjár eða fjórar fötur af heitu vatni
er ekki of mikið til allra þarfa. Handklæði
og sápu, og laust borð, sem hægt er að
leggja áhöld á, er sjálfsagt að hafa tilbúið
í fjósinu. Það er allt önnur aðstaða fyrir
dýralækninn að vinna ef allt er undirbúið
en sé allt hið frumstæðasta. Rúmt þarf að
vera umhverfis sjúklinginn. Flytja skal
kýrnar til beggja hliða og leggja hey í bás-
ana þar sem allar athafnir fara fram. Sjálf-
sagt er að hafa hey í pokum til þess að
færa undir kúna um leið og hún leggst.
Og svo er það lýsingin. Flytjanlegur
lampi er nauðsynlegur, dýralæknirinn þarf
að geta fengið ljós eins og við á til þess að
rækja starfið eftir þörfum. Einnig þarf
Aðfarir eins og efri myndin sýnir eru til ills eins. Með
ró og jafnaðargeði bíða þau á neðri mynd — bað er rétt.
annan útbúnað svo sem kaðla og annað til
þess að lyfta kúnni, — að ógleymdum sterk-
um hjálparmönnum.
Sitt af hverju þarf að gera til þess að
allur undirbúningur sé í lagi þegar dýra-
læknirinn kemur. Á því veltur mjög, ef líf
kálfsins og kýrinnar er í veði, að dýralækn-
irinn geti tekið til starfa á réttum tíma, því
að oft eru það mínútur eða sekúndur, sem
ráða úrslitum í því efni.
Þegar kýrnar eru í fjósi um burðinn er
vandinn allur meiri og undirbúningur erf-
iðari en að sumrinu þegar hægt er að vera
úti, en það er nú svo, að flestar kýr bera í
fjósi. En hvort sem þær eru úti eða inni er
aðgæzlu alltaf þörf. Sá sem ekki er örugg-
ur verður að leita aðstoðar annarra.
(Husmandshj emmet).