Freyr - 01.03.1958, Qupperneq 20
104
FREYR
Húsmæðraþáttur
Verðandi húsmóðir
Er það heimilið eða skólinn — eða hvort-
tveggja, sem menntar einstaklinginn, og býr
ungu stúlkuna undir hlutverk hennar sem
góðrar húsmóður?
Við skulum heyra hvar unga stúlkan, er
um getur á eftirfarandi frásögn, öðlaðist
kunnáttu sína og leikni. Grein sú, sem hér
er endursögð, birtist í vikublaðinu „Landet“
í vetur.
Inga er tæplega 17 ára. Hún er vinnu-
stúlka á stóru heimili og vinnur að öllum
almennum heimilisstörfum. Hún er að
smyrja veizlumat, brauðsneið með eggjum,
styrjuhrognum og sítrónu, aðra með rækj-
um og mayonese, hina þriðju með lifrar-
kæfu og ætisveppum, og svo eru smáréttir,
krabbar með hrísgrjónum, aspargus með
smjöri og svo aðalrétturinn, steiktar dúfur,
margs konar salöt, franskar kartöflur og ís
með jarðaberjum. Allt þetta býr Inga til og
framreiðir á viðeigandi hátt, í hörpudisk-
um, á venjulegum diskum eða í skálum.
Já, hún kann það þó að hún sé ekki orðin
17 ára, en hún hefur líka tekið þátt í ung-
mennafélagsskapnum 4—H frá því hún var
9 ára og þeim námskeiðum, sem sá félags-
skapur hefur haldið og ungar stúlkur tekið
þátt í. En mest hefur hún lært hjá móður
sinni, bóndakonu á góðu sveitaheimili.
Ýmiss heimilisstörf eru henni orðin full-
komin íþrótt. í samkeppni fyrir ungar
stúlkur 14—17 ára vann hún með yfirburð-
um fyrir nokkru, en þar var keppt um:
1) að baka tebollur
2) Að umpotta plöntur
3) Að stoppa í sokka.
4) Ritgerð um ákveðið húsmóðurhlut-
verk.
Inga hafði ekki gert ráð fyrir að verða
hlutskörpust í heilum landshluta en játaði
að fengnum verðlaunum, að hún væri því
vön heima að þurfa að hafa hraðan á í
daglegu starfi og þar væri leiknin fengin.
En Inga kann fleira sögðu félagar henn-
ar, sem höfðu verið þátttakendur í ung-
mennastörfunum um áraraðir ásamt henni.
Já, víst kann hún fleira. Það fékkst stað-
fest við að heimsækja hana, þar sem hún
er nú vinnustúlka á höfðingjaheimili, þar
sem veizlur eru oft og mörgu að sinna. Inga
er að starfi í stóru og björtu eldhúsi búnu
nýtízku hjálpartækjum.
— Mér þykir sveitin skemmtilegust, en ég
vildi nú prófa að vinna á embættismanna-
heimili, læra að búa til fínan mat og fleira,
segir Inga.
í sveitinni þarf maður alltaf að flýta sér
og sjaldan er tími til að prófa hitt og þetta;
og þess vegna er gott að kynnast starfinu
við önnur skilyrði. En skemmtilegast finnst
mér í sveitinni hjá kúm og hestum — ég
hef stundað hestamennsku, meira að segja
unnið verðlaun fyrir reiðmennsku. Það
gerði ég þegar ég var 10 ára.
— Og hvaða áhugamál fleiri?
—- Ég byrjaði með 4—H félögunum þegar
ég var 9 ára. Ég hirti kálf og garð. Á hverju
ári var ég með í samkeppninni á Bellahöj-
sýningunni með kálfinn minn, á árunum
1951—1953, og fékk fyrstu verðlaun árið
1952. Svo var ég í stjórn 4—H ungmenna-
félagsins heima í sókninni og um leið í
amtssamtökum unglinganna.
— Og fleira?
— Já, í fimleikaflokki — róðrarfélagi —-
maður hefur bara gott af því að hreyfa sig
mátulega mikið og . . .
— ★ —
Víst er það sitt af hverju, sem Inga hefur
prófað og — og að sögn annarra — alls-
staðar staðið í fremstu röð hvað ástundun
og árangur snertir.
Hún segist þurfa að fara á fætur og byrja
daginn klukkan 6,30. Það er mikið að gera
á stóru heimili, hreingerningar í stofum,
skrifstofu, gestaherbergjum, baðherbergj-
um, og þetta allt á þremur hæðum hússins.
J