Freyr - 01.04.1959, Blaðsíða 30
124
FRE YR
Fyrirmæli um litarmerkingar á sauðfé vorið 1959
1. gr.
Sauðfé og geitfé skal merkja, áður en því
er sleppt frá húsi í vor, samkvæmt fyrir-
mælum þessum. Merkja skal greinilega,
þannig að mála hornin bæði að aftan og
framan, en forðast þó að mála yfir brenni-
mörk. Kollótt fé skal merkja á hnakka,
hægri eða vinstri kjamma, eftir því sem
við á. Þess skal gœtt að endurmerkja fé við
rúning, eftir því sem þörf krefur.
2. gr.
í Mýrdal skal merkja féð með krómgul-
um lit á bæði horn.
3. gr.
Féð í Rangárvallasýslu austan Ytri-Rang-
árgirðingar skal vera ómerkt.
4. gr.
Á svæðinu milli Ytri-Rangárgirðingar og
Þjórsár skal merkja féð með rauðum lit á
bæði horn.
5. gr.
Á svæðinu milli Þjórsár og Hvítár—Ölfus-
ár skal merkja féð með bláum lit á bæði
horn.
6. gr.
í Biskupstungum skal merkja féð með
grænum lit á bæði horn.
7. gr.
í Grímsnesi, Laugardal og Þingvallasveit,
austan Þingvallavatns og Þjóðgarðsins, skal
merkja féð með grænum lit á bæði horn.
8. gr.
í Þingvallasveit, vestan Þingvallavatns og
Þjóðgarðsins, Kjós, Kjalarnesi og Mosfells-
sveit, skal merkja féð með rauðum lit á
bæði horn, Fé, sem haft kann að verða í
einangrun á tilraunastöðinni á Keldum,
skal merkja með dökkbláum lit á bæði
horn. Annað fé vestan Ölfusár og á Reykja-
nesskaga skal vera ómerkt.
9. gr.
í Borgarfjarðarsýslu, sunnan Skorradals-
girðingar skal merkja féð með krómgulum
lit á bæði horn Annað fé í Boorgarfjarðar-
sýslu og Hvítársíðu ofan varnargirðingar
skal vera ómerkt.
10. gr.
í Mýrasýslu vestan Hvítársíðugirðingar
og austan Langár og í Dalasýslu austan
Hörðudals og sunnan Haukadalsgirðingar
skal merkja féð með rauðum lit á bæði
horn.
11. gr.
í Mýrasýslu vestan Langár, í Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu austan Snæfellsnes-
girðingar og Hörðudals í Dalasýslu skal
merkja féð með hvítum lit á bæði horn.
12. gr.
í Miklaholtshreppi, Helgafellssveit og
Stykkishólmshreppi skal merkja féð með
bláum lit á bæði horn. Annað fé á Snæ-
fellsnesi skal vera ómerkt.
13. gr.
í hólfinu milli Haukadalsgirðingar og
Hvammsgirðingar skal merkja féð með
grænum lit á bæði horn. í Dalahólfinu
milli Hvammsf j arðar—Hrútaf j arðargirð-
ingar og Gilsfjarðar—Bitrufjarðargirðing-
ar skal merkja féð með krómgulum lit á
bæði horn.
14. gr.
í hólfinu frá Gilsfjarðar-Bitrufjarðar-
girðingu að Berufjarðar—Steingrímsfjarð-
argirðingu skal merkja féð með bláum lit
á bæði horn.
Allt fé á Vestfjörðum þar norðan við skal
vera ómerkt. Einnig skal vera ómerkt allt
fé á svæðinu frá Hrútafjarðargirðingu að
Miðf j arðargirðingu.
15. gr.
Á svæðinu frá Miðfjarðargirðingu að
Blöndu skal merkja féð með hvítum lit á