Freyr - 01.04.1959, Blaðsíða 3
FRE YR
Bændur!
Notið SHELL smurningsolíur
Tilraunir hafa leitt
í ljós, að brunagas í
brunaholinu getur
myndað allt að hálf-
urn lítra af sýru í
hreyflinum daglega.
Orsök þessa er, að
gufur, sem myndast
við eldsneytisbrunann
þéttast og setjast á
slitfleti hreyfilsins, er
við það tærast og
ryðga.
Þetta á sér einkum stað, þegar hreyfillinn er kaldur, t. d. í akstri á stutt-
um vegalengdum, þar sem sífellt er verið að stanza og aka af stað aftur.
SHELL — smurningsolíurnar velþekktu — SHELL X-100 fyrir benzín-
hreyfla og SHELL ROTELLA fyrir dieselhreyfla, — eru blandaðar efnum,
sem koma í veg fyrir hin skaðlegu áhrif slíkra sýrumyndana.
Engar aðrar smurningsolíur henta betur dráttarvélahreyflum, þar eð þær
halda smurhæfni sinni óskertri, jafnvel við mjög mikið álag.
Notið því þessar afbragðsolíur og veitið þannig hreyflinum örugga vernd,
sem einungis úrvalssmurningsolíur geta í té látið.
Olíufélagið SKELJUNGUR h.f.