Freyr - 01.04.1959, Blaðsíða 9
FREYR
103
ur og einnig neytendur, að dreifingu og sölu
mjólkurafurða sé komið fyrir á sem hag-
kvæmastan hátt. S.l. 2 ár hafa þessi mál
verið til athugunar hjá Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga og Mjólkursamsölunni. Niður-
staða þessara athugana varð sú, að heppi-
legast taldist að sameina undir eina stjórn
dreifingu og sölu á framleiðsluvörum mjólk-
ursamlaganna. Samningar um þetta tókust
á s.l. vori og í framhaldi af því stofnuðu
Samband ísl. samvinnufélaga og Mjólkur-
samsalan í Reykjavík með sér sameignar-
félag til þess að annast um sölu afurða
mjólkursamlaganna.
Samband ísl. samvinnufélaga fer með
umboð í félaginu fyrir m„ólkursamlög kaup-
félaganna fyrir norðan og austan, en Mjólk-
ursamsalan fyrir Mjólkurbú Flóamanna og
Mjólkursamlag Kaupfélags Borgfirðinga.
Félagið, sem hlaut nafnið
OSTA- OG SMJÖRSALAN S.F.,
er til húsa að Snorrabraut 54 í Reykjavík,
en þar var áður gamla mjólkurstöðin.
Tilgangur félagsins er tvíþættur:
1. Að annast á umboðssölugrundvelli sölu,
þar á meðal útflutning á öllum fram-
leiðsluvörum íslenzkra mjólkursamlaga.
Félagið mun þó aðeins starfa sem heild-
sala og selur því vörur sínar smásölum,
er síðan verzla við einstaklinga.
2. Að koma á vöruvöndun og gæðamati á
mjólkurafurðir samlaganna og sam-
ræma framleiðsluna.
Fyrirmyndina að starfsemi Osta- og
smjörsölunnar höfum við sótt til nágranna-
þjóðanna á Norðurlöndum og þó sérstak-
lega til Noregs, vegna þess að staðhættir
þar eru líkastir því sem hér eru. Það er
einnig staðreynd, að Norðmenn, sem ekki
teljast til mikilla landbúnaðarþjóða, hafa
komið á hjá sér einföldu, en mjög hag-
kvæmu fyrirkomulagi á dreifingu mjólkur-
afurða.
Hjá þeim þjóðum, sem langt eru á veg
komnar í mjólkuriðnaði, hefur reyndin orð-
ið sú, að framleiðsla gæðavöru hefur byggzt
á því, að ráðin hefur verið bót á ýmiss kon-
ar vanrækslu undirstöðuatriða. Beztur ár-
Úr ostageymslu í kjallara.
angur hefur alls staðar náðst með lagfær-
ingu þessara mála á þann hátt, að fram-
leiðendur hafa sameinazt og sett með sér
reglur og eigið eftirlit. Með því móti hefur
reynzt unnt að bæta framleiðsluna og veita
neytendum fullkomið öryggi og góða vöru.
— Mjólkursamlögin hafa verið sett undir
strangt eftirlit um allt hreinlæti og með-
ferð mjólkurinnar og þeim hefur verið veitt
tæknileg hjálp og leiðbeiningar í öllu, sem
betur mátti fara. Allt hefur þetta borið
góðan árangur og á Norðurlöndum t. d. hef-
ur verið komið á samræmingu í framleiðslu
úrvals mjólkurafurða, sem heimsfrægð hafa
hlotið.
Eins og áður hefur verið tekið fram, mun
Osta- og smjörsalan reyna að feta í fótspor
nágrannaþjóðanna, með því m. a. að láta í
té tæknilega þjónustu. Framleiðsluhættir
samlaganna verða athugaðir og samlögun-
um hjálpað og leiðbeint eftir því sem nauð-
synlegt reynist.
----o---
Annar höfuðtilgangur Osta- og smjörsöl-
unnar er að koma á gæðamati mjólkuraf-
urða. í því sambandi hefur verið leitað til
samtaka norskra mjólkurframleiðenda um