Freyr - 01.04.1959, Blaðsíða 29
FRE YR
123
Minningarlundur um Halldór Vilhjálmsson,
skólastjóra
í marz síðastliðið ár ákváðu nokkrir nem-
endur Halldórs Vilhjálmssonar, Hvanneyri,
að efna til fjársöfnunar í því skyni að
gróðursetja skógarlund til minningar um
Halldór með barrplöntum eingöngu.
Var boðað til fundar um þetta í Reykja-
vík, og mættu þar um 20 af fyrrv. nemend-
um Halldórs frá Hvanneyri.
Fundarmenn tóku allir þessari hugmynd
vel, og var kosin 5 manna framkvæmda-
nefnd til að hrinda þessu máli í fram-
kvæmd, svo fljótt sem verða mætti. Skyldi
samið við Skógrækt ríkisins að annast
Plöntun fyrir það fé, sem safnast kynni, í
landi Skógræktar ríkisins í Skorradal.
Samdist svo, að Skógræktin fengi 1 kr.
fyrir hverja plöntu, sem gróðursett væri, en
plöntur verði lagðar fram kostnaðarlaust.
Lofaði Skógræktin allt að 12 ha landi í
Stálpastaða-girðingu til þessarar plöntun-
ar, sem væri greinilega afmarkað frá ann-
arri skógplöntun þar.
Söfnunin hófst strax í marzmánuði, og
safnaðist það mikið fé fram í júnímánuð,
að hægt var að planta 37.000 plöntum síð-
astliðið vor. Var fé þetta að mestu leyti
fengið í Reykjavík og næsta nágrenni.
Steinn áletraður var keyptur og reistur í
þessum minningarlundi. Öllum nemendum
Hvanneyrarskóla frá skólastjóraárum Hall-
dórs Vilhjálmssonra, sem haldið var að
væru á lífi, var sent ýtarlegt bréf um þetta,
ef þeir áttu heima utan Reykjavíkur og
næsta nágrennis. En ennþá er ókunnugt
um mikinn meirihluta þeirra, hvort þeir
muni taka þátt í söfnuninni. Hins vegar
hafa þeir nemendur, sem búsettir eru í
Reykjavík, yfirleitt snúizt mjög vel við
þessu máli, og er þess að vænta, að svo
verði einnig um hina.
Nú mun að nýju sótt fram í vetur til á-
framhaldssöfnunar og að því takmarki að
geta fullplantað í allt það land, sem heitið
hefur verið undir minningarlund Halldórs,
sem eru allt að 12 ha. En það er þegar bú-
ið að planta í 6 ha. Að ákveðið var að planta
þennan minningarlund í landi Stálpastaða
í Skorradal, kom af því, að þar væru ör-
uggust skilyrði til fljótra og góðra þrifa
barrtrjáplantna á Suðvesturlandi, af lönd-
um, sem þar eru girt öruggri girðingu.
En á Hvanneyri hefði allt verið tvísýnna
um þetta, og ef til vill ekki komizt í verk
fyrr en löngu síðar. Þar vantaði góða og
örugga giröingu. Auk þess, sem land og veð-
urskilyrði eru ekki æskileg þar til þvílíks
trjáuppeldis, að dómi skógræktarmanna.
★
FREYR vill gjarnan koma áleiðis til al-
þjóðar, en þó fyrst og fremst til nemenda
Halldórs Vilhjalmssonar, boðskapnum um
framtak það er framanskráð greinir frá.
Þeir, sem vilja eiga aðild að því skulu
hafa samband við einhvern þeirra aðila,
er kjörnir voru til þess að annast fram-
kvœmdir, en þeir eru:
Gunnlaugur Ólafsson, skrifstofustjóri,
Laugavegi 162, Reykjavík,
Haldór Jónsson frá Arngerðareyri, Rauð-
arárstíg 36, Reykjavik,
Ingimar Jóhannesson, fulltrúi, Laugar-
ásvegi 47, Reykjavik,
Kristófer Grímsson, héraðsráðunautur,
Silfurteigi 4, Reykjavík,
Magnús Kristjánsson, garðyrkjumaður,
Eskihlíð D, Reykjanesbraut.
Ritstj.