Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1960, Side 10

Freyr - 01.05.1960, Side 10
162 FREYR JÓNAS JÓNSSON kennari: Val grasa til beitar og sláttar Erindi flutt á frœðslukvöldi í Brún vorið 1959. Nær allur okkar búskapur byggist á grasnytjum. Það er því full ástæða til að gefa grastegundunum gaum, en þær eru margar og mismunandi að eðli. Jónas Jónsson Hálfgrösin, starirnar, ríkja á raklendinu í mýrum, flóum og flæðiengj um; eru þau sum nokkuð kostamikil og geta gefið góða eftirtekju við æskilegustu aðstæður, en önnur lélegri. Á þurrlendinu ráða heilgrösin, eða tún- grösin, lögum og lofum, og eru því sínu mikilvægari. Eftir uppruna sínum flokk- um við heilgrösin stundum í innlend og erlend túngrös, það er þau, sem vaxa í gamalgrónum högum og túnum, og svo hin, sem hafa verið flutt inn og er hey þeirra oft nefnt sáðgresi. Enginn sérstakur eðlismunur er þó á þessum flokkum grastegunda, en allar geta þær verið mismunandi harðgerðar og þolnar við hérlendar aðstæður. Má í því sambandi geta þess, að snarrótarpunturinn, þessi seigasta og harðasta af öllum okkar arastegundum, er talin innflutt með byggð- inni í landið, og er hún ekki búin að ieggja bað undir sig að fullu. Enn er hún að nema land á Vestfjörðum. Það, sem meira máli skiptir, er hvaðan tegundirnar koma. að upprunastaðurinn sé sem líkast- í'r að veðurfari því sem hér er. t ^orður-Noregi sýndu tilraunir með ■.-nT'irfoxgras, að það reyndist þeim mun i'fib'r. sem upprunastaður þess var norð- 'roqnri. Nú er það svo, að erfitt hefur ver- ið að fá fræ af vallarfoxgrac'i frá Noregi. hvað þá af norður-norskum uppruna, og er c-'A'fqas't að bví mikill skaði. Við notum graslendið aðallega á tvenn- an hátt: Til slœgna og beitar. Það má líka skipta grösunum í tvo hópa eftir vaxtar- lagi og fjölgunarmáta í sláttugrös og beit- argrös. Sláttugrösin eru strárík, hávaxin og bera stráin mikinn hluta af blaðamagninu, fá þeirra hafa skriðula jarðstöngla og þau mynda fremur gisna rót og þola því illa beit og hverfa fljótt úr túnum, við hana. En þau eru að því leyti vel fallin til sláttar, að blaðamagnið teygist hátt og er ekki þétt niður við rótina; þau slást því vel. í þessum flokki eru tvö grös, sem skara fram úr, það eru vallarfoxgrasið og háliða- grasið. Það fyrrnefnda þykir lostætara og getur gefið enn meiri uppskeru en hið síðarnefnda, sem er aftur á móti harð- gerðara og helzt því yfirleitt lengur í sléttum. Háliðagrasið á bezt við á mýrarjörð og vegna þess hve harðgert það er, hefur mjög verið ráðlagt að nota það í hinum harðbýlli héruðum. En þar, sem veðursælla er, ætti vallarfoxgrasið tvímælalaust að vera aðal- grasið í túnum. En það þolir illa beit og allra sízt vetrarbeit hrossa. Beitargrösin einkennast af því, að þeim fjölgar með skriðulum jarðstönglum og hafa þétta rót, blöðin eru rótstæð og lítið um strá, þegar einn sproti af þeim er bit- inn koma tveir í staðinn. Þessi grös þola mjög vel beit, þau verða þeim mun ríkari í graslendinu, sem meira er beitt á það. En

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.