Freyr - 01.05.1960, Síða 20
172
FRE YR
157 tvílembingshrúta 14.75 — (14.62)
143 tvílembingsgimbra 13.77 — (13.71)
133 einlembingshrúta 18.44 — (18.34)
119 einlembingsgimbra 17.18 — (16.71)
Reiknaður meðalfallþungi eftir þrílembu
var 45.60 kg., eftir tvúembu 28.58 kg, eftir
einlembu 17.85 kg. eftir hverja á, sem skil-
aði lambi og eftir hverja á, sem lifandi var
í fardögum, 20.42 kg. Þetta eru aðeins meiri
afurðir en haustið 1958 eða 0,22 kg pr. á.
Meðalföll einlembinga reyndust nú 3.56
kg þyngri en tvílembinga, en í fyrra nam
sá munur 3,31 kg, er bendir til þess að tví-
lembum hafi ekki liðið hlutfallslega eins
vel og vorið 1958, enda var ánum nú sleppt
fyrr og tvílembum því ekki mismunað eins
lengi frameftir og árið áður.
Eftirfarandi tölur sýna meðalfallþunga
eftir tvílembur annars vegar og einlemb-
ur hins vegar á Hesti, á hverju hausti, síðan
an fjárskiptin fóru fram:
Meðalf.þ í kg eftir 1953 1954 1955 1956 1957 1958 1959
Tvílembur 30.21 30.50 27.37 32.16 31.42 28.42 28.58
Einlembur 17.25 17.82 16.80 19.34 19.45 17.52 17.85
Mism 12.98 12.68 10.57 12.82 11.97 10.90 10.73
Meðalafurðir í kjöti eftir tvílembu þessi
7 ár er 11.80 kg meiri en eftir einlembu.
Ullin af ánum vó 2.16 kg að meðaltali,
óþvegin. Hún rýrnar til muna með aldri
ánna. Eftirfarandi tölur sýna ullarþunga
ánna eftir aldri. Töiur frá fjórum undan-
förnum árum eru birtar til samanburðar.
Meðalþungi óþveginnar ullar:
1955 1956 1957 1958 1959
Af 8 vetra ám
— 6 — —
— 3 — —
kg kg kg kgl.68 kg
— — — 1.85— 1.72 kg
— — 1,96— 1,81— 1,92 —
— 1.70 — 1,95— 2,01— 2,03 —
2.28 — 1.92 — 2.16— 2.24— 2.44 —
2.48 — 2.04 — 2.41 — 2.60 — 2.44 —
2.95 — 2.28 — 3.24— 3.17— 2.97 —
Vegið meðaltal 2.42 — 1.96 — 2.24— 2.22— 2.16 —
Ullin er svipuð að magni síðustu þrjú árin,
að'eins 0.08 kg léttari að meðaltali 1959 en
1957, en það er vegna hlutfallslega aukins
fjölda gamalla áa í hjörðinni.
Tvævetlurnar höfðu 180% þyngri ull en
átta vetra ærnar 1959.
Haustið 1959 var slátrað 76 ám af heima-
stofni, 16 geldum og 60 mylkum. Geldu ærn-
ar vógu til jafnaðar á fæti 71.5 kg og lögðu
sig með 29.7 kg falli, 5.7 kg mör og 4.9 kg
gæru eða samta’s 40.3 kg kjöt, mör og gæru
að meðaltali. Mylku ærnar vógu á fæti 58.1
kg til jafnaðar og lögðu sig með 21.2 kg falli,
1 8 kg netjumör og 3.7 kg gæru eða samtals
26.7 kg kjöt mör og gæru að meðalt. eða 13.6
kg minna en geldu ærnar. Nýrmör mylku
ærinnar var veginn með kjötinu. Sjö geldu
ærnar og 39 mylku ærnar voru 8 vetra gaml-
ar, en hinar yngri. Mylku ærnar, sem slátr-
að var voru sumar afurðatregar, aðrar
skemmdar á júgri og nokkrar óeigandi
vegna rýrðar og vanþrifa.
Slátrað var 3 hrútum fullorönum og 2
veturgömlum. Þeir fullorðnu lögðu sig til
jafnaðar með 40.4 kg falli, 6.9 kg gæru og
3.7 kg netjumör, en þeir veturgömlu með
31.6 kg falli, 7.2 kg gæru og 2.7 kg netju-
mör. Tveir hrútanna voru af forystukyni.
Fóðrun gemlinganna.
Lömbin voru tekin til hýsingar og gjafar
5. nóvember. Þeim var beitt fyrsta hálfan
mánuðinn, en gefið inni eftir það fram á
góu. Þá var farið að beita þeim, en lítið
dregið af gjöf vegna beitarinnar fyrr en fór
að gróa í maí (sjá töflu 4). Geldu gemling-
unum var sleppt á úthaga um miðjan maí,
en þeir lembdu voru á húsi fram til 23. maí,
en var þá sleppt á tún, bæði þeim bornu
og óbornu. Voru þeir á túni ti! viku af júní.
Tafla 3. Þyngdarbreytingar lambanna.
Meðalþungi á fæti kg
Þyngdar-
aukning kg.
Lömb Tala 1.10.’58 1.2.’59 5.5.’59 1.10.-5.5.
Valin til lífs 31 42.47 44.39 52.32 9.85
Ovalin 38 37.47 41.05 49.62 12.15
Meðaltöl 69 39.72 42.55 50.83 11.11
Lömbin vógu að meðaltali 39.72 kg 1. okt.
1958 42.55 kg 1. febr. 1959 og 50.83 kg 5.
maí. Þau þyngdust frá 1. okt til 1. febrúar
2.83 kg en frá 1. febrúar til 5. maí 8.28 kg
eða alls yfir veturinn 11.11 kg að meðaltali,
(sjá töflu 3). Sama tafla sýnir, að völdu á-
setningslömbin vógu 1. okt. 5.0 kg meira