Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1960, Page 23

Freyr - 01.05.1960, Page 23
FREYR 175 er enginn hugarburður, en vissulega þess vert aS taka til rækilegrar athugunar. ís- lendingar hafa tapað lystinni á feita kjöt- ið, vegna hinnar miklu notkunar á mjöl- mat og sykri frá útlandinu og er það raunar il’.a farið. Varla verður kjötið eins vont ef fitað er á grasi t. d. hafragrasi og á túnum. Til þess að hafa fyrsta flokks dilkakjöt, verðum við að slátra dilkunum, hagagengn- um, og síga á, eins og nú horfir, með úrval og góða fóðrun á fénu og fá um leið megnið af ánum tvílembt. En þá kemur að því stóra atriði, sem er að bæta hagann með þurrkun og útgræðslu. Það er leiðin til að bæta við rúm fyrir fleira fé í högunum. Skotar hafa löngu útrýmt votlendinu úr högum sauðfjárins. Það gerðu þeir líka til að losna við ormaveiki í fénu. Þeir hafa líka lengi bætt beitilandið með því að brenna úr því beitilyng, sem sækir í mikinn vöxt. í brunasárunum láta þeir svo þróast valllendisgrös. En lyngið sækir jafnan á að ryðja sér til rúms. Svo er það vandamálið, að of margt sé í högum, er standi fénu fyr- ir sæmilegum þrifum. Það verður hver og einn að segja sér sjálfur. Annars fer þetta mjög eftir gröðurfari og hve landið er vel gróið Er það mál vant mikillar athugunar. Vestan í Vaðlaheiði, á Svalbarðsströnd, á töluverðu svæði, þar sem land er vel gróið, er að sumrinu kind við kind. Þarna verða dilkar sæmi’ega vænir. Vesturhlíð þessi er gróin vel og sólrík og í skjóli fyrir norðaust- an áttinni, féð ræktar þarna undir sér land- ið, í svona þéttsettnum haga. Þetta allt stuðlar að því, að þarna er lengur nýgræð- ingur í jörð, en víðar í högum. Þarna eru ær ágæt'ega fóðraðar og haldið vel við fram í gróður, sem er alls staðar mikið skilyrði. Ekki er þó ráðlegt að ala lambærnar af gróðrinum, en því mun nú óvíða til að dreifa. í allri framleiðslu er markmiðið það, að ná sem mestum arði, með minnkandi til- kostnaði og ná sem mestum vörugæðum, margþætt mál. Þar er mikils virði eftirtekt og þekking fjárræktarmannsins. Til þess hafa menn, eins og á öðrum sviðum, ólíkt upplag. Vænleiki og gæði dilkanna fer eft- ir mörgu, svo sem ætterni, vaxtarlagi, fóðr- un ánna, gróðurfari hagans, landrými, veð- urfari sumarsins og hvort mæðurnar eru mjólkurær eða stritlur. Mjólkurlagni ánna er ættgengur eiginleiki, er hver fjárræktar- maður verður að veita athygli í ærhópnum. Hrúta má ekki velja til lífs undan stritlum og ekki halda upp á þær sjálfar. í okkar fé, sem valið er einkum til holda, má ekki ætlast til að ærnar mjólki eins og geitur. En þær geta hæglega mjólkað sæmilega, ef eiginleikinn til þess liggur í fjárættunum og hlúð er að honum með eftirtekt og úrvali. Ég hafði lengi þann hátt á, að hafa ærnar geldar, til frálags heima, er á þeim sá elli- mörk. Beztu mjó’kurærnar urðu vænstar til frálags. Þessi eiginleiki kom þá þannig fram. Það virðist eiga allangt í land að ná þeim ullargæðum og ullarmagni á féð, sem þörf er á og hægðarleikur er að sameina við gott holdafar og gott vaxtarlag. Ullin fer nokkuð eftir meðferð fjárins, gróðurfari og veðrum, en þó einkum eftir ætterninu. Því þarf að vanda vel úrvalið. Þelveggur- inn þarf að vera sem lengstur og þykkast- ur, með stutthrokknu togi, en illhærur all- ar og ótitjur að hverfa. Skinnið þarf að vera þykkt, rúmmikið, laust á skrokknum á kindinni og kirtlastarfsemin í húðinni góð. — Þannig skinnlag er öruggasta af- urða- og hreystieinkenni fjárins. Ullin og skinnið á kindinni er vísinda- grein og svo er um allt, er við kemur fram- leiðslu afurða sauðfjárins. Það er gott til að halda við áhuga fjár- ræktarmanna. Við þurfum ekki að búast við stökkbreytingu í fjárræktinni. En verk- efnið er að þróa kosti fjárins svo að þeir festist og gangi í arf með vaxandi öryggi. Okkur vantar að þróa meira gæðamat af- urðanna. Fjárræktarmenn þurfa að vera vel heima í faginu. Sauðkindin er nytsemi og prýði þessa lands og hagnýtir gróður þess á stöðum þar, sem engin skepna önnur getur það. Nú er ekki lengur talað um geitfé. Margt fleira mætti segja í sambandi við þetta stórmál. En hér verður nú staðar numið að sinni. 9. marz 1960. Jón H. Þorbergsson.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.