Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1961, Side 26

Freyr - 01.07.1961, Side 26
224 FRE YR Margar tilraunir hafa verið gerSar til þess að koma dreifingu og sölu eggja í heildsölu í fastari skorður, í því skyni að tryggja framleiðendum sem jafnast og öruggast framleiðsluverð, en reynslan sannar, að slíkt er óhugsandi, þegar fram- leiðendur selja eggin í harðri samkeppni hver við annan, svo sem verið hefur síð- ustu mánuðina, og reyndar oft áður. En nú fer eggjasalan ekki fram sam- kvæmt eðlilegum viðskiptaleiðum, heldur að miklu leyti í íbúðarhúsum bæjanna og jafnvel á götum úti. Er þar samskonar söluaðferð og tíðkað- ist fyrir mannsaldri síðan á kjöti og öðr- um búvörum. Með samþykkt frumvarpsins, sem nú liggur fyrir Alþingi um breytingu á lög- um um Framleiðsluráð, mun skapast nýtt viðhorf og sala afurðanna verða framleið- endum til sóma. Og sölumálin eru ekki ný af nálinni. Fyrsta samsala á eggjum var stofnuð af Reykvíkingum á árunum 1935—1936. í fundargerð Eggjasölusamlagsins frá 1936 segir svo:: „Við undirritaðir félagsmenn í Eggjasölusamlaginu, mættir á fundi á Hótel Borg 19. janúar 1936, skuldbind- um okkur hérmeð til að vinna að eíl- ingu samlagsins með því að leggja inn í samlagið öll vor söluegg framvegis, ef nægileg þátttaka fæst til þess að Sláturfélag Suðurlands sjái sér fært að hafa söluna á hendi áfram, og aðrir félagsmenn skrifa undir þessa skuld- bindingu". Tillagan var frá formanni og samþykkt En svo líða tveir mánuðir. Þann 15. marz sama ár — 1936 — er á félagsfundi samþykkt svohljóðandi tillaga: „Fundurinn samþykkir að strika alla þá menn út, sem ekki hafa lagt inn egg síðan um nýár“. Stundum er sagt, að sagan endurtaki sig. Hinn 1. janúar 1959 stofnaði Samband Eggjaframleiðenda til samsölu, að undan- gengnum einróma samþykktum tveggja aðalfunda þar á undan. Á því ári lögðu inn i samsöluna nokkuð á 6. hundrað félagsmenn. Verðlag hélzt stöðugt allt árið, og raun- verulegur dreifingarkostnaður samsölunn- ar reyndist aðeins 8% af heildsöluverði, og myndaðist strax á fyrsta ári sjóður, sem átti að vera til uppbyggingar í framtíðinni. Og sagan endurtók sig: Þessi 8% voru sumum framleiðendum þyrnir í augum og ætluðu að fá þau í eig- in vasa, en afleiðingin hefur orðið sú að allir hafa tapað a. m. k. 20%. Og þessvegna er ástandið eins og það er í dag. Framleiðendur bjóða verðið niður hver í kapp við annan og verðskráning er ekki lengur til, enda algerlega þýðingarlaus við þessar aðstæður. — Offramleiðsla er orð, sem oft heyrist nefnt í sambandi við eggjaframleiðslir og það hefur verið rætt um ýmsar leiðir til að koma í veg fyrir hana, svo sem takmörkun á útungun og skömmtun á fóðri; en slíkar takmarkanir eru svo erfiðar í framkvæmd, að ég álít þær alveg óframkvæmanlegar. Hóflegt og stöðugt verðlag er bezta ráð- ið til að hamla gegn stórum sveiflum í þessari framleiðslu. Það er vissulega von okkar eggjafram- leiðenda og trú, sem teljum að þessi bú- grein eigi að vera traust og heilbrigð at- vinnugrein, en ekki einskonar happ- drætti — að Alþingi það er nú situr, flýti afgreiðslu þessa máls — um breytingu á Framleiðsluráðslögunum — sem auðið er og samþykki þessa sjálfsögðu réttarbót. — Aö síðustu: Það er vissulega ástæða til að fylgjast vel með því, sem er að gerast í kornræktarmál- unum. Ný vélttækni er að koma þar til sögunn- ar, sem breytir öllu viðhorfi, bannig. að vandalaust er að rækta hér mestallt fóð- urkorn. Munum það, að vanda framleiðslu okkar og koma henni sem fyrst á markaðsstað. Og síðast en ekki sízt. Eggjaframleiðend- ur! Hvar sem þið búið, standið saman! Sundrungin er búin að valda of miklu tjóni.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.