Freyr - 01.07.1961, Blaðsíða 34
232
FRE YR
Gísli Vagnsson,
bóndi á Mýrum Úr varplandinu á Mýrum í Dýrafirði.
ur áhugi er fyrir hendi, en það kostar
þrotlausa árvekni og umhyggju að koma
því upp og verja það fyrir varginum.
En sé hægt að veita því þá vernd, sem
nauðsynleg er, á að vera hægt að koma upp
æðarvarpi á miklu fleiri stöðum en nú er.
Ef til vill verður auðveldasta leiðin til að
koma upp æðarvarpi, að ala sjálfur upp
ungana, t. d. með því að láta tamdar end-
ur unga út æðareggjum og þá á þeim stað,
sem varpið verður staðsett.
Á staðnum þarf að vera tjörn — búa
hana til ef hún er ekki fyrir hendi — þar
sem öndin getur synt með ungana. Einnig
þarf að sjá ungunum fyrir nógu sjávar-
fangi, svo sem: grásleppuhrognum, muld-
um hrúðurkarli, fiski o. fl. Allt þetta þarf
að vera nýtt þegar unganum er gefið það.
Þegar líður fram á haustið er rétt að
sleppa þeim á sjóinn og láta þá sjálfa sjá
fyrir sér úr því. — Þetta er reynsla eins
nágranna míns. Tveimur árum eftir að
hann hafði alið upp ungana, urpu þrjár
eða fjórar kollur hjá honum; nú eru þar
nokkur hundruð hreiður, en erilssamt var
hjá honum að vernda þennan litla stofn.
Það varð ekki gert með öðru móti en að
vaka nótt og dag yfir því.
Önnur leið til að koma upp æðarvarpi er
að vernda fyrstu kolluna, sem kann að
verpa í landareigninni. Þessi aðferð er al-
gjörlega háð tilviljun, bæði með að kollan
verpi og með staðarval. Takist svo vel til,
að hreiðrið sé við sjó, eða vatn ekki langt
frá sjó, má segja, að vel hafi tekizt. Ef til-
viljunin hefur verið manninum svona hag-
stæð kemur til hans kasta að vernda
hreiðrið þar til ungarnir eru farnir úr því.
Þegar hreiður finnst, er helzta leiðin því til
verndar að reisa steina á þrjá vegu, svo sem
10—15 cm út frá körfuni á hvorn veg.
Þessir veggir þurfa að taka 20—30 cm upp
fyrir körfuna, en gæta þess að þeir séu
vel stöðugir. Síðan má setja hellu, sem
myndar nokkurskonar þak yfir þessu húsi,
en láta hana ekki ná nema lítið eitt fram
á körfuna til að byrja með, en smá færa
hana næstu daga þar til hún lokar að
mestu yfir hreiðurhúsið. Sjálfsagt er að
fara mjög varlega í fyrstu meðan kollan er
að spekjast, en fáist hún til að setjast á
hreiðrið, eftir að veggirnir um það eru