Freyr - 01.06.1968, Síða 6
Fró Stéttarsambandi bœnda
Á aukafundi í Stéttarsambandi bænda,
sem haldinn var í Bændahöllinni dagana 7.
og 8. febrúar síðastliðinn, var rætt hið
alvarlega ástand, sem skapast hefur í land-
búnaðinum vegna hins óhagstæða verð-
lagsúrskurðar á síðast'liðnu hausti, verð-
falls og söluerfiðleika á erlendum mörk-
uðum, áhrifa erfiðs tíðarfars og hækkandi
verðlags á rekstrarvörum vegna nýafstað-
innar gengisfellingar.
Hjá fulltrúum kom fram mikill uggur
um fjárhagslega afkomu landbúnaðarins
og bændastéttarinnar af nefndum ástæð-
um.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:
Vegna þess ástanda í landbúnaðinum,
sem skapast hejur vegna nýafstaðinnar
dómsniðurstöðu yfirnefndar í verðlagsmál-
um og aukinnar dýrtíðar af völdum gengis-
fellinga, ákveður aukafundur Stéttarsam-
bands bœnda i febrúar 1968 að kjósa 5
menn til þess, ásamt stjórn Stéttarsam-
bandsins, að ganga á fund ríkisstjómar
íslands og bera fram m. a. eftirfarandi:
1. Að bændum ver&i tryggt grundvallar-
verð á framleiðslu yfirstandandi verð-
lagsárs og á þær birgðir framleiðslu-
vara, sem til voru við upphaf þess.
2. Að rekstrarlán til landbúnaðarins
verði stóraukin.
3. Að lausaskuldum bænda verði breytt
í föst lán með hóflegum vöxtum.
4. Að gefinn verði frestur á afborgun
Stofnlána í Búnaðarbanka íslands.
5. Að tilbúinn áburður verði greiddur
niður á komandi vori, svo hann hækki
ekki í verði frá því sem var á fyrra
ári.
6. Að felld verði brott gengistrygging á
stofnlánum vinnslustöðva og rækt.
unarsambanda.
7. Að tollar af landbúnaðœrvélum og
varahlutum til þeirra verði lækkaðir
eða felldir niður með öllu.
8. Að rikisstjórnin verðbæti ull og gær-
ur af framleiðslu verðlagsársins 1966
— 1967.
9. Að sett verði nú þegar reglugerð sam-
kvæmt ákvœðum 45. gr. framleiðslu-
ráðslaganna, sem kveði nánar á um
framkvæmd II. kafla laganna.
Nefnd sú, sem um ræðir 1 tillögunni, fór
ásamt stjórn Stéttarsambandsins á fund
forsætisráðherra, Bj arna Benediktssonar
og Ingólfs Jónssonar, landbúnaðarráðherra,
til að kynna þeim efni tillagnanna og
ástand í landbúnaðinum yfirleitt.
Stjórn Stéttarsambandsins hefur oft rætt
þessi mál við landbúnaðarráðherra og
skrifað forsætisráðherra og óskað svars við
málaleitan aukafundarins.
Svarbréf barst frá landbúnaðarráðherra
dagsett 23. þessa mánaðar og fer það hér á
eftir.
Reykjavík 23. marz 1968.
Sem svar við bréfi dags. 20. þ. m. skal
þetta tekið fram:
Um þau atriði er greinir íl.,5. og 8. tölu-
lið í tillögum aukafundar Stéttarsambands-
ins, skal tekið fram, að Ríkissjóður hefur
ekki fé aflögu til þess að verða við þessum
óskum Stéttarsambandsins.
Af því er varðar tillöguna í 2. tölulið er
þess að geta, að samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar er mjög óhagstætt fyrir
Ríkissjóð að greiða niður áburðarverð.
232
F R E Y R