Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1968, Page 10

Freyr - 01.06.1968, Page 10
GUÐBRANDUR E. HLIÐAR: lúgurbólgurAnnsóknir Samkvæmt ákvörðun stjórnar M.S. hófust júgurbólgurannsóknir upp úr áramótum 1966-67. Ákveðið var að einbeita sér að skipulagðri leit að júgurbólgu í kúm, á takmörkuðu svæði, sem nær yfir Gull- bringu- og Kjósarsýslu og fjóra syðstu hreppa Borgarfjarðarsýslu, eða meðal allra þeirra mjólkurframleiðenda, sem senda mjólk daglega beint til M.S. Mjólkursýni voru tekin, með jöfnu milli- bili, fjórum sinnum á árinu, úr innvigtun- armjólk hvers bónda. Rannsóknin beindist að leit keðjugerilsins str. agalactiae og klasagerilsins staf. aureus, en þessir tveir gerlar valda að jafnaði langflestum júgur- bólgutilfellum. Jafnframt fylgdi talning hvítra blóð- korna í mjólkinni. Hvít blóðkom finnast alltaf í mjólk, en við bólgu 1 mjólkurvefn- um eykst tala þeirra til muna. 200 — 500 þús. hvít blóðkorn í ml. mjólkur er talið eðlilegt, en tölur þar yfir benda annað- hvort á júgurbólgu eða að nokkrar kýr eru að geldast eða eru nýbornar. Fari saman há tala hvítra blóðkorna, ásamt fundi áð- urgreindra júgurbólgugerla, er viðkomandi mjólkurframleiðanda gert viðvart og hon- um ráðlagt að athuga allar mjólkandi kýr í fjósinu með brómthýmolprufunni. Að því loknu er þess vænzt, að hann geri rannsóknarstofunni viðvart um tölu kúa, sem samkvæmt þeirri prófun eru grunsam- ar um júgurbólgusmit á einum eða fleiri júgurhlutum. Rannsóknarstofan sendir honum þá tafarlaust rör til töku mjólkur- sýna, hæfilega mörg, ásamt leiðarvísi um töku þeirra. Síðan fer fram leit að júgurbólgugerlum Guðbrandur E. Hlíðar. og samhliða rannsókn á tölu hvítra blóð- korna í öllum mjólkursýnum, sem okkur berast úr einstökum júgurhlutum, ásamt næmisprófi fundinna júgurbólgugerla gegn helztu fúkalyfjum, sem hér eru í notkun. Endanleg niðurstaða rannsóknanna er tilkynnt bóndanum bréflega og afrit sent viðkomandi héraðsdýralækni, sem síðan verður að leggja ráðin á um læknisaðgerðir, einangrun sýktra kúa og annað, sem hann kann að telja nauðsynlegt í hverju tilfelli. í þeim f jórum umferðum, sem framkvæmd- ar voru á árinu 1967, bar áðurgreind leit að júgurbólgu eftirfarandi árangur. (sjá töflu 1.) Við athugun töflunar kemur í ljós, að smit með Str.agalactiae og Staf.aureus er mjög útbreitt á þessu svæði. í flestum til- vikum hafði bóndinn ekki hugmynd um júgurbólgusmit þar til hann athugaði mjólk úr hverjum júgurhluta með brómthýmol- prufunni. Af því má draga þá ályktun, að um dulda bólgu (króniskt smit) sé að ræða. Slíkar kýr eru frískar, mjólkin oft eðlileg í útliti og mjólkumytin gefur ekki ástæðu til áhyggju. Hér er þó engu að síður og óvé- fengjanlega um smit að ræða, sem skyndi- lega getur blossað upp í bráða júgurbólgu, eða breiðst frá einum júgurhluta í annan, eða úr einni kú í aðra og valdið verulegu tjóni fyrir viðkomandi bónda. í A-lið töflunnar eru hlutföllin milli 236 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.