Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 12
júgurhlutum (41,97%), þar af fundust Str.
agalactiae í 188 júgurhlutum (46,65%),
Staf.aureus í 154 (38,21%) og aðrir ekki
nánara tilgreindir (hemolytiskir) gerlar í
61 (15,14%).
Öllum þessum 50 bændum var boðin
endurnýjuð rannsókn á mjólkursýnum úr
smituðu kúnum 1 mánuði eftir að fyrri
rannsókn lauk, að því tilskildu; að aðgerðir
yrðu framkvæmdar í samráði við dýra-
lækni. í Ijós kom að aðeins 29 bændur
(58.0%) þágu þá aðstoð.
Sú spurning hlýtur að leita á, hvaða ár-
angurs megi vænta af slíkum rannsóknum,
ef í kjölfar þeirra fylgja tafalaust læknis-
einangrunar og hreinlætisaðgerðir.
Af þeim 29 bændum, sem samkv. framan-
skráðu sendu inn mjólkursýni til rannsókn-
ar tvisvar, hefi ég valið úr þá 25 þeirra, sem
einnig upplýstu um tölu mjólkurkúa þegar
rannsókn hófst. Rannsóknarstofunni bár-
bárust ekki nýjar tölur mjólkurkúa
mánuði eftir fyrri rannsókn, en það tíma-
bil er svo stutt að ég leyfi mér að ganga út
frá, að hún hafi verið óbreytt við seinni
rannsókn, eða svo lítið breytt að ekki skipti
máli.
Fyrri rannsókn
tala bænda ....................... 25
tala mjólkurkúa ................. 489
tala kúa með júgurbólgu ......... 1X3 (23,10%)
tala júgurhluta m. júgurbólgu .... 215 (47,56%)
tala — m. St.agalaetiae .... 88 (19,46%)
tala — m. Staf.aureus .... 102 (22,56%)
Seinni rannsókn
tala bænda ....................... 25
tala mjólkurkúa ................. 489
tala kúa með júgurbólgu .......... 39 ( 7,97%)
tala júgurhluta m. júgurbólgu .... 39 (25,0 %)
tala — m. Str.agalactiae .... 0 ( 0,0 %)
tala — m. Staf.aureus .... 39 (25,0 %)
í þessum samanburði er sleppt öðrum
gerlum (í 25 júgurhlutum), enda voru ekki
nánar greindir.
Við samanburð þessara tveggja rann-
sókna kemur í ljós eftirfarandi:
1. Tala kúa með júgurbólgu í seinni um-
ferð hefir lækkað úr 113 í 39, en það
jafngildir 65,48% lækningu.
2. Tala júgurhluta með júgurbólgu hefir
lækkað úr 215 í 39, en það jafngildir
81,86% lækningu.
3. Str.agalactiae-smit hefir horfið, en
það jafngildir 100% lækningu.
4. Staf.aureus-smit hefir lækkað úr 102
tilfellum í 39, en það jafngildir 61,76%
lækningu.
Við seinni rannsókn kom
eftirfarandi í ljós:
1. Nýsmit í júgurhlutum,
sem voru heilbrigðir við
fyrri rannsókn, þar af
Str.
Sjálfsagt er að mjalta í sýnikönnu
og athuga fyrstu bogana úr hverj-
um spena til þess að staðfesta
heilbrigði júgursins.
238
F R E Y R