Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1968, Page 16

Freyr - 01.06.1968, Page 16
milliliðalaust, en verður úrvalsfæða, þegar jórturdýrin hafa breytt honum í mjólk og kjöt. Af jórturdýrunum eru nautgripir og sauðfé mikilvægastir með tilliti til út- breiðslu og afurðahæfni, en þetta er einmitt það búfé, sem íslenzkur landbúnaður grundvallast á og mun enn gera um langt skeið, svo sem verið hefur til þessa í landi, sem er jafn vel fallið til grasræktar og Is- land. Það væri þröngsýni að halda fram einni búfjártegund á kostnað annarrair. Hitt er ekki einungis eðlilegt, heldur nauðsynlegt, fyrir bændastétt hverrar þjóðar að leggja hlutlægt mat á hverja grein landbúnaðar- ins og finna, hvaða hlutfall milli þeirra er æskilegt með aðstæður til framleiðslu og sölu innanlands og utan sem leiðarljós. Að þessu sinni verður ekki farið út í þá sálma, hvernig þetta samspil nautgripa- ræktar og sauðfjárræktar yrði með hag- kvæmustum hætti hér á landi. Til þess þyrfti ýtarlegan rökstuðning og í rauninni frekari könnun. Hitt mun naumast vera ágreiningsmál, að hin ýmsu kyn nautgripa séu eða geti orðið afkastameiri til mjólk- ur- og kjötframleiðslu en sauðfé og þrífist betur við misjöfn skilyrði loftlags og gróð- urs í ýmsum löndum heims, enda virðist svo, að í sauðfjárrækt sé víða lögð meiri áherzla á ullarframleiðslu en kjöt. Það, sem drepið hefur verið á hér að framan, er ætlað að vera eins konar for- spjall iað frásögn og eigin hugleiðingum um nokkur þeirra málefna, sem voru á F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.