Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1968, Síða 17

Freyr - 01.06.1968, Síða 17
dagskrá á alþjóðlegri ráðstefnu um naut- griparækt, sem haldin var í marz 1967 í París á vegum frönsku landbúnaðarstofnun- arinnar CENECA. Skal í eftirfarandi varið nokkru rúmi í Frey til að gera þessum mál- um einhver skil. Verður þá jafnframt skýrt frá niðurstöðum, sem beint eða óbeint geta orðið að gagni fyrir íslenzka nautgriparækt og til leiðbeiningar um, að hverju skuli stefnt og hvaða leiðir valdar. Meðal þeirra mála, sem rædd verða, eru framleiðsla og neyzla nautgripaafurða, áhrif markaðsins á framleiðsluna, fram- leiðslukerfi, kjötframleiðsla af mjólkur- kynjum og holdanautgripum, hvernig ný tækni skapar öryggi gagnvart sjúkdóma- hættu við innflutning nautgripa og fnam- farir á sviði fóðrunar. Fjöldi nautgripa í hlutfalli við íbúafjölda er afar misjafn í hinum ýmsu löndum heims, eins og sést á eftirfarandi yfirliti, sem er þó ekki tæmandi. í Norður-Ameríku eru um 211 milljónir manna og 118 milljónir nautgripa eða 56 nautgripir á hverja 100 íbúa, í Suður-Ame- ríku eru 235 milljónir manna og 212 mill- jónir nautgripa eða 90 nautgripir á 100 íbúa og í Ástralíu 17 milljónir manna og 26 mill- jónir nautgripa eða 153 á hverja 100 íbúa, og er þá átt við álfuna alla. í Evrópu verður hlutfallið allt annað. Þar er íbúafjöldi 441 milljón, en nautgripir að- eins 147 milljónir eða 26 á hverja 100 íbúa, eða speni á mann eins og eðlilegt þótti á sveitaheimilum hér áður fyrr. í nálægum Austurlöndum eru 147 milljónir manna og 37 milljónir nautgripa og buffalóa eða 25 gripir á 100 íbúa, í hinum fjarlægari Aust- urlöndum er talið, að séu 993 milljónir manna og 323 milljónir nautgripa og buffa- lóa eða 32 gripir á 100 íbúa, og í Afríku 261 milljón manna og 114 milljónir nautgripa eða 44 á 100 íbúa. rt Framleiðsla á kjöti og mjólkurafurðum af nautgripum er einnig misjöfn að magni til í hinum ýmsu löndum heims, hvort sem miðað er við framleiðslu á hvem íbúa, eða eftir hvern grip, en fer þó vaxandi. Er talið, að hún hafi aukizt um 46 af hundraði á árunum frá 1948-’52 annars vegar til áranna 1959-’61 hins vegar. Þannig er 1 Norður- Ameríku framleidd árlega 45 kg af nauta- og kálfakjöti á íbúa og 310 kg mjólkur. í Evrópu er samsvarandi framleiðsla 16 kg af kjöti og 320 kg af mjólk, en í Austur- Asíu aðeins 1 kg kjöts og 30 kg mjólkur (Kína undanskilið). Verzlun milli landa á nautakjöti og naut- gripum á fæti jókst um 90% á áður nefndu tímabili, en þó er neyzla nautgripakjöts mest í þeim löndum, sem mest framleiða af því. Af hinum einstöku heimshlutum er neyzlan mest í Ástralíu, 46,3 kg á íbúa, 43,1 í Norður-Ameríku, 18,2 í Evrópu, en langtum lægri annars staðar eða frá 5,3 kg í Afríku, þar sem hún þó fer sívaxandi í sumum löndum, niður í 1,0 kg í Austur- Asíu. Svipaða sögu er að segja um framleiðslu og neyzlu mjólkur og mjólkurafurða á sama tímabili. Umreiknað í mjólkurfitu nemur áætluð neyzla þessara vara á árunum 1961- ’63 um 21,1 kg í Ástralíu, 16,0 í Evrópu, 11,4 í Norður-Ameríku og frá 3,4 kg í nálægari Austurlöndum allt niður í 1,3 kg í Afríku. Mjólkurframleiðsla hefur aukizt um tæp 2% á ári í Evrópu, Norður-Ameríku og Ástralíu síðustu 15-20 árin, en í þróunar- löndunum hefur hún tæplega haldizt í hendur við fólksfjölgun. í Evrópu er það nær eingöngu í löndum Efnahagsbandalags- ins, sem nautgripum hefur fjölgað, heldur er hin mikla aukning mjólkurframleiðsl- unnar þar fólgin í auknum afurðum eftir hverja kú, sem aftur á móti er árangur kynbóta og framfara í fóðrun og hirðingu. Þetta hefur skapað offramleiðslu í ýms- um löndum Evrópu, þó ekki meiri en svo, að með lítið eitt aukinni neyzlu mjólkur- vara rnundi hún hverfa. Smjömeyzla er F R E Y R 243

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.