Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 18
Hún er af hollenzkum stofni, holdgóður gripur og ágæt mjólkurkýr.
einna mest í Ástralíu og Nýja Sjálandi eða
11 kg á íbúa, en í Evrópu 5,2 kg, þótt þar
sé hún mjög misjöfn. Sem dæmi um offram-
leiðslu þar má nefna, að Hollendingar flytja
út meira en helming smjörframleiðslu sinn-
ar, en neyta sjálfir aðeins rösklega 4 kg á
íbúa. Ef meðalneyzla þar í landi ykist upp
í 6,8 kg aðeins, þyrftu þeir ekkert smjör að
flytja út. Ef neyzla smjörs í Mið- og Suður-
Ameríku ykist úr 400 g í 450 g á íbúa á ári,
væri offramleiðsla smjörs ekki vandamál
í þeim heimshluta, og þannig mætti áfram
telja. Sjálfir neytum við íslendingar aðeins
um 6 kg af smjöri á ári á mann eða rétt yfir
meðaltalið í Evrópu. Hefur verið bent á
það, að hollara mundi vera að auka neyzlu
smjörs um nokkur kg á íbúa og draga hlut-
fallslega úr sykurneyzlu, sem mun vera um
það bil áttföld til tíföld á við smjör.
Hin mikla mjólkurframleiðsla í Evrópu
og batnandi efnahagur almennings hefur
leitt til þess, að ríkari áherzla er nú lögð á
kjötframleiðslu af nautgripum þar en áður
í tengslum við mjólkurframleiðsluna. Er þá
bæði um að ræða nautakjöt og alikálfakjöt.
í sumum löndum hafa fremur holdamikil
mjólkurkyn og tvínytja kyn verið notuð til
þessarar framleiðslu, og hin mikla vaxtar-
geta og vaxtarhraði kálfa af þeim kynjum
verið vel nýtt á þann veg. Á þennan hátt er
hægt að framleiða ágætt alikálfakjöt, þó að
hlutfallið milli vöðva og beina verði frem-
ur óhagstætt. Mjólkurkýrnar eru þá heldur
ekki látnar verða mjög gamlar, enda stund-
um felldar fyrir aldur fram vegna of lítiilar
frjósemi. Kjöt af þeim er þá sæmilegt, þótt
nokkuð gróft sé, en nær aldrei þeim kjöt-
gæðum, sem bezt verða af holdanautgrip-
um. Hin aðferðin, sem nú er mjög í tízku, er
sú að framleiða alikálfa- og ungneytakjöt
með einblendingsrækt. Eru þá mjólkur-
kýrnar látnar festa fang við holdanautum
með sæðingu. Hefur franska holdakvnið
Charolais verið reynt víða til einblendings-
ræktunar síðasta áratuginn og reynzt
heppilegt til blöndunar við sum mjólkur-
kyn til þessarar framleiðslu. Kjötfram-
leiðsla af hreinræktuðum holdanautgripum
heldur að sjálfsögðu áfram í mörgum lönd-
um, en tiltölulega 'lítið samhliða mjólkur-
244
F R E Y R