Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 19

Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 19
framleiðslu. En jafnvel í þeirri búgrein eru framleiðsliuaðferðir að breytast. Til skamms tíma byggðist sú framleiðsla svo til ein- göngu á víðlendum beitilöndum og þannig verður áfram í stórum hlutum heims, svo sem Suður-Ameríku, og mun sennilega stóraukast í Afríku við þurrkun lands. í þeirri álfu er talið, að á 10 milljóna fer- kílómetra svæði, þar sem tsetse flugan hef- ur verið smitberi búfjársjúkdóma, væri hægt að hafa 125 milljónir nautgripa í stað nokkurra milljóna nú. Þar bíða tækifæri hinna innfæddu þjóðflokka. En þótt þeir og kúrekar Suður-Ameríku, „vacqueros“ og „gauchos“ eigi framtíð fyrir sér, eru „cow- boys“ Norður-Ameríku á undanhaldi þrátt fyrir hina miklu víðáttu lands síns. Mark- aðskröfurnar hafa breytzt, og nú vilja neyt- endur þar kjöt af ungneytum, sem fituð hafa verið á aðfluttu fóðri, aðallega maís, í þar til gerðum fóðrunargörðum eða réttum. Yfir 60% af þeim holdanautpeningi í Bandaríkjunum, sem slátrað er árlega, er nú fóðraður á þennan hátt. Við það, að hreyfing er lítil, þar sem gripirnir geta ekki rásað, verða vöðvarnir mýkri, og með maís- fóðrun fæst á þennan hátt hið bezta holda- nautakjöt, sem framleitt er, af hálfs annars árs til tveggja ára geldneytum. Sums stað- ar í Evrópu er nú orðið algengt að fóðra sláturgripi inni, en annars staðar í álfunni er lögð meiri áherzla á framleiðslu alikálfa, sem oftast nær eru einnig innifóðraðir. Er þá, eins og áður er sagt, stefnt að því að auka nautakjötsframleiðsluna með því að kappfóðra einblendingskálfa undan mjólk- urkúm og holdanautum af vöðvamiklum kynjum, sem hafa mikla og öra vaxtargetu. Enda þótt aldur sláturgripa fari lækkandi í hinum þróuðu löndum, verður þyngd grip- anna eigi að síður meiri en þar, sem þeir eru látnir verða eldri, vegna þess, að fóðrun er góð og nákvæmni og alúð viðhöfð í ræktun og meðferð allri. Áætlað er, að sláturgripir í Norður- Ameríku hafi á árinu 1964 vegið á fæti að meðaltali 460 kg og alikálfar 110 kg, í Evrópu 440 kg og alikálfar 105 kg, en í Suður- og Mið-Ameríku, þar sem slátur- gripir eru gerðir 4ra til 6 vetra, hafi þeir vegið 380 kg fullorðnir. í Ástralíu var þungi sláturgripa á sama ári 374 kg, en í Asíu og Afríku er þungi full- orðinna gripa minni, 280-300 kg. Að sjálf- sögðu er það margt fleira en meðferð og búskaparaðstaða, sem áhrif hefur á, hvaða þyngd sláturgripir ná, og þá ekki hvað sízt, hvert nautgripakynið er, en alls eru þau talin vera um 250 og um 10 buffalokyn. Ólíkar aðstæður hafa ekki síður áhrif á mjólkurframleiðsluna. í Evrópu eru hrein mjólkurkyn og tvínytja notuð til mjólkur- framleiðslu, og er nythæð þeirra afar mis- jöfn eða frá 1000 til 4000 kg á hverja kú, sem notuð er til mjólkurframleiðslu, og er þá miðað við meðaltöl í hinum ýmsu lönd- um, en fyrir álfuna í heild um 2800 kg. í Ástralíu er meðalnytin aðeins lægri eða um 2600 kg, í Norður-Ameríku mun hærri eða um 3300 kg, í Suður-Ameríku um 1000 kg og enn lægri í Asíu, en þar er hún æði misjöfn. Að loknu þessu yfirliti um afurðir naut- gripa í hinum ýmsu hlutum heims er rétt að víkja að því, hvar við íslendingar erum á vegi staddir í þessari framleiðslugrein land- búnaðarins. Þetta efni skiptist í tvo þætti, mjólkurframleiðslu og kjötframleiðslu. Íslenzka kúakynið er mjólkurkyn, sem landnámsmenn fluttu með sér, og hefur það ekki orðið fyrir neinum sýnilegum áhrif- um við blöndun, þótt vitað sé, að á síðari öldum væru fluttir inn nokkrir gripir stöku sinnum. Á söguöld er talið, að nautgripir hafi orðið flestir eða um 135 þúsund, þar af um 80 þúsund mjólkurkýr eða helmingi fleiri en nú. Árið 1703 er tala nautgripa komin niður í 35.860, en verður lægst 9.804 árið 1784, eftir móðuharðindin. Eftir það fjölgar nautgripum að vísu fljótt aftur, en F R E Y R 245

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.