Freyr - 01.06.1968, Blaðsíða 20
Svona voru þær.
sauðfjárrækt verður þá aðalbúgreinin og
hélzt svo, unz þéttbýli tók að aukast á þess-
ari öld. Talið er, að kýr hafi á söguöld
mjólkað um 1100 kg, og það er ekki fyrr en
á 19. öld, að nythæðin fer að vaxa að ráði
og er í byrjun þessarar aldar nálægt 2000 kg.
Allt frá árinu 1903 hefur verið starfað fé-
lagslega að nautgriparækt og ávallt undir
forustu Búnaðarfélags íslands. Hefur frá
upphafi þess starfs verið lögð áherzla á að
auka afurðagetu kúnna til mjólkur, enda
lengi verið mjólkurskortur í ört vaxandi
þéttbýli. Einnig var stefnt að því að auka
mjólkurfitu jafnframt nythæðinni og bæta
þannig úr smjörskorti. Er enn lögð megin-
áherzla á þessi tvö atriði. Vottað hefur fyrir
gagnrýni á því að leggja áherzlu á mjólkur-
fitu hin síðustu ár á þeim svæðum, sem
mjólk er seld til neyzlu. Er því til að svara,
að enn er unnið úr allt að 60% af þeirri
mjólk, sem berst til mjólkurbúanna. Séu
því fyrir hendi óskir frá framleiðendum og
neytendum um, að mjólk sé seld með á-
kveðnu fitumagni, þá ber að leysa það mál
tæknilega á einfaldan og nákvæman hátt
með því að taka hluta af fitunni úr mjólk-
inni. Það er að öllu leyti hagkvæmari leið
og eðlilegri en hætta á að glata því, sem
áunnizt hefur í löngu ræktunarstarfi, eigin.
leika, sem er mikilvægur og hefur nú mjög
hagkvæmt gildi. Ostefni fylgja að magni
til eftir mjólkurfitunni í aðaldráttum, þótt
þar kunni að vera um frávik iað ræða, en
smjörfita og ostefni eru verðmætustu hlut-
ar mjólkurinnar. Síðustu árin hefur mjólk-
urfitan farið ört vaxandi, og er það að lang-
mestu leyti fyrir kynbætur. Hún er nú orð-
in 4% að meðaltali fyrir skráðar kýr á
vegum nautgriparætarfélaganna, en þær
eru um 17000 talsins eða rösklega 40% af
kúm landsmanna.
Fyrsta aldarfjórðunginn, sem nautgripa-
ræktarfélögin störfuðu, var meðalnyt full-
mjólkandj kúa fiest árin milli 2200 og 2400
kg og mjólkurfita milli 3,6 og 3,7%, en var
orðin rösklega 3000 kg eftir annan aldar-
fjórðunginn, en mörg ný félög höfðu þá
bætzt við. Mest hefur afurðaaukningin orð-
ið síðustu árin, og voru árin 1963, ’64 og ’65
hvert um sig metár um afurðir í sögu fé-
laganna. Meðalnyt árskúa var árið 1965 3420
kg, en fullmjólkandi kúa 3608 kg og mjólk-
urfita 4,02%. Meðalnyt allra kúa í landinu
er á sama tíma áætluð um 3000 kg eða
nokkuð hærri en í Evrópu sem meðaltal, og
eru þó íslenzkar kýr mun smærri en flest
hinna erlendu kynja.
Þessi árangur bænda í ræktunarstarfi
þeirra sýnir, að ekki er ástæða til innflutn-
ings á öðrum kynjum vegna mjólkurfram-
leiðslunnar nema síður sé, og enn er hægt
að vinna mikið ræktunarstarf úr þeim góða
efniviði, sem íslenzka kúakynið er.
Framhald.
Afurðahæfnin fer ört vaxandi.
t
246
f R E Y R