Freyr

Volume

Freyr - 01.06.1968, Page 27

Freyr - 01.06.1968, Page 27
tyldu ekki í fénu, sem gengur mikið í lágu þéttu skógarkjarri. Engu að síður hafa þessi nýju plastmerki yfirleitt haldizt vel í fénu í Norðurárdal nú í meira en tvö ár. Einnig hafa merkin verið reynd all-víða annars staðar á nokkrum þúsundum kinda, svo sem í syðra Dalahólfi, í Þverárhlíð, Stafholtstungum og víðar í Mýrasýslu, en einnig í Hesti og fleiri tilraunabúum, í Bæjarhreppi í Strandasýslu og víðar. Allir aðilar eru sammála um það, að merki þessi séu mjög auðveld og örugg í notkun, haldist vel í fénu og þvingi ekki kindina. Stafir þeir, sem koma á merkjun- um, afmást ekki né dofna, og eru mjög greinilegri af-lestrar, en í því felst mikill vinnusparnaður við sundurdrátt fjársins. Númeramerkingum hefir verið hagað þannig, að á annari plötunni voru hlaup- andi númer eða sérnúmer kindarinnar á hverri plötu, en á hinni tala fyrir bæinn, sýslubókstafur og hreppsnúmer. Með þessu móti má auðveldlega staðfesta númer, heimili, hrepp og sýslu hverrar kindar af eyrnamerkinu. Þessi stafaröðun á eyrna- merkjum hefir þegar verið reynd hér á landi í mörg ár og gefið mjög góða raun. Áhugi minn fyrir að reyna þessi merki til hlítar byggðist upphaflega einkum á því, að þau eru framleidd í mörgum mismun- andi litum. Eins og kunnugt er, hefir ár- lega verið fyrirskipuð mismunandi lita- merking á fé um allt land svo tugum ára skiptir, eftir héruðum og fjárskiptahólfum. Þetta hefir átt að tryggj a það, að langferða- fé eða kindur, sem komast milli fjárskipta- hólfa, væru auðþekktar frá heimafé, og yrði því til að auðvelda tafarlausa ein- angrun þeirra. Þetta er mjög mikilsvert atriði til að hindra smitburð milli héraða og mun sums staðar hafa komið að nokkr- um notum, en reynsla síðustu ára bendir til þess, að hin fyrirskipaða litamerking, málning á horn, í hnakka og kjamma, komi nú orðið að sáralitlum notum. Hyrndu fé hefir farið mjög fækkandi, en málning tollir stutt og illa á kollóttu fé, og meðal annars af þeim sökum hafa bændur mjög gefizt upp við málrúngu fjárins. Þeim kindum fækkar stöðugt, sem málningin to'lir á, og einrig þeim bændum, sem hlýða lögboðnum fyrirmælum um að mála fé sitt tvisvar á hverju vori. Þessar umfangs- miklu aðgerðir eru því víðast hvar orðnar lítils- eða einskis virði. Með því að taka upp lituð eyrnamerki í stað málningar og jafnframt greinargóða stafaröðrm á merkin, sem fyrr var lýst, virðist auðvelt að ná aftur þeim fyllsta árangri, sem upphaflega var stefnt að með litamerkingum fjárins, og raunar að kom- ast feti lengra í eftirliti með hlaupafé en nokkur tök hafa verið á til þessa hér á landi. Það er augljóst, hve mikilvægt þetta getur orðið við allar varnaraðgerðir og hindrun á dreifingu sauðfjársjúkdóma milli varnarsvæða. Hitt er og Ijóst, að nú, þegar mislit eyrna- merki eru komin á markaðinn, er hætta á því, að þau dreifist um sveitir landsins og litum verði blandað tilviljunarkennt eftir smekk manna og öðrum atvikum. Ef nota á lituðu eyrnamerkin í sóttvarnarskyni, eins og fyrr var drepið á, er nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að merkin dreifist af handahófi um byggðir landsins. Á síðast- liðnu hausti gerði ég það því að tillögu minni við sauðfjársjúkdómanefnd, að á- kveðnir merkilitir yrðu lögskipaðir fyrir öll sauðfjárvarnarsvæði landsins. Einnig, að á eyrnamerkjum verði skráð tölunúmer á bæ og hreppi auk sýslubókstafs. Nefndin tók mjög vel í þessa málaleitan, og nú hefir landbúnaðarráðuneytið gefið út, samkvæmt tillögu nefndarinnar, reglu- gerð þá um litamerkingu búfjár, sem hér birtist ásamt mynd, er sýnir merkiliti 28 varnarsvæða um allt land. Við ákvörðun lita fyrir hvert svæði voru hafðir til hliðsjónar þeir litir, sem áður voru notaðir við málningu sauðfjár á sama svæði. Einnig var leitazt við að dreifa litum þannig, að sem lengst bil yrði milli sam- litra varnarsvæða. F K E Y R 251

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.