Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 28
LandbúnaSarráðherra í ræðustól við setningu Búnaðarþings, forseti íslands Iengst t. h.
BÚNAÐARÞING 1968
HiO 50. I pööinni
Búnaðarþing er haldið árlega hin síðari ár.
Hraði tímans og atburðarásin er svo ör, að
ekki veitir af að ráða málum til lykta og
móta ný viðhorf miklu fljótar og til
skemmri tíma en fyrrum.
Búnaðarþing ársins 1968 kom saman
þann þann 19. febrúar s. 1. Formaður Bún-
aðarfélags íslands setti þingið og stýrði því.
Viðstaddir setningu voru forseti íslands og
landbúnaðarráðherra, og flutti hinn síðar-
nefndi ræðu við setningu þingsins. Margir
gestir voru viðstaddir.
Rétt kjörnir fulltrúar til þingsetu eru
25. Jafnmargir varamenn eru kjörnir af
búnaðarsamböndum landsins; Mættu á
þinginu allir aðalmenn, en einn veiktist
meðan á þinghaldi stóð og kom þá vara-
maður til fundasetu, en hann var Ölvir
Karlsson, Þjórsártúni, í sæti Jóns Egils-
sonar, Selalæk.
Freyr hefur stundum flutt allítarlegar
fréttir af Búnaðarþingi, en nú er horfið að
því ráði að birta þingtíðindin 1 Búnaðar-
ritinu. Er því ástæðulaust að Freyr flytji
langt mál um þessa samkomu bændanna.
Skal því hér aðeins stiklað á fáum atriðum
frá störfum Búnaðarþings.
Á þinginu komu 53 mál til meðferðar.
Þannig er háttað verkefnum Búnaðar-
þings, að þau eru send úr ýmsum áttum.
Fyrst'og fremst eru þar mál, sem stjórnin
ber fram. Sum þeirra eru færð á vettvang
252
F R E Y R