Freyr - 01.06.1968, Side 30
Stjórn Búnaðarfélags íslands og starfsmenn Búnaðarþings í bókasafni forseta íslands á Bessastöðum.
Við hægri hlið forsetans eru: Þorsteinn Sigurðsson, Halldór Pálsson Sveinn Jónsson, Ásgeir L. Jónsson.
Við vinstri hlið forsetans: Pétur Ottesen, Ásgeir Bjarnason, Benedikt Grímsson, Ragnar Ásgeirsson.
að ósk einhvers eða einhverra aðilja. Önn-
ur eru undirbúin fyrir beina tilstilli stjórn-
arinnar eða af henni unnin.
Ennfremur koma verkefnin frá búnaðar-
samböndunum eða sérfræðingum búnaðar-
samtakanna og enn önnur frá Alþingi. Þar
sem málum er stefnt til þingsins úr svo
mörgum áttum er eðlilegt, að ýmiss þeirra
séu um sama efni eða skyld og önnur því
nær eða alveg samhljóða. Eðlilegt væri að
málin kæmu til þingsins fyrr en á síðustu
stundu svo að samhæfa mætti þau áður en
þinghald hefst. Svo er þó ekki og þannig
verður málaskráin löng, en hinsvegar taka
einstakar nefndir skyld mál til meðferðar,
tvö eða fleiri í senn, eftir því sem efni
standa til.
Meðal mála þeirra, sem mikilsverðust
má telja, voru þessi:
Þrír fyrirlestrar voru fluttir:
254
Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri gerði
grein fyrir starfsemi Búnaðarfélags íslands
á árinu 1967.
Kjartan Jóhannsson, verkfræðingur,
talaði um hagkvæma stefnu í kjarnfóður-
vinnslu. Fjallaði erindi hans um niðurstöð-
ur rannsókna, sem hann hefur gert á vegum
kj arnfóðurnefndar.
Gísli Kristjánsson, ritstjóri, talaði um
meðferð og notkun kraftfóðurs.
Voru efni allra þessara erinda til um-
ræðu á málaskrá þingsins.
Búnaðarfélagið og Stéttarsamband
bænda hafa haft starfandi nefnd til þess að
kanna ný viðhorf í innflutnings — og fóð-
urvinnslumálum og jafnframt komu fram
á þinginu óskir um náskyld efni, svo sem
athafnir í öryggis skyni fyrir ísahættusvæði.
Þá voru einnig til meðferðar hin eiginlegu
og lögfestu forðagæzlumál, sem nú eru all
F R E r R