Freyr - 01.06.1968, Qupperneq 31
Guðmundur í Ási ræðir við frú Björgu Ásgeirsdóttur en Jónas Jónsson, ráðunautur, hlýðir með „andagt“
á ræðu Ingimundar á Hæli. fv.
hátt á baugi meðal almennings, vegna hins
óvenjulega erfiða árferðis, sem ríkt hefur í
vissum landshlutum ár eftir ár.
Ennfremur sendi Alþingi Búnaðarþingi,
til umsagnar og álits, frumvarp til laga um
eftirlit með fóðurvöru.
Oll þessi mál voru rætt í nefndum og á
sameiginlegum þingfundum og má víst
fullyrða, að engin efni voru að þessu sinni
tímafrekari á mála-skránni.
Varðandi þessi og önnur mál voru sam-
þykktir gerðar:
1. Um að herða á eftirliti með forðagæzlu
og krefjast þess, að félagsskapur bænda
bindi fastari fyrirmælum hversu mikið
fóður skuli í minnsta lag'i ætla bústofni
hverrar sveitar og þau ákvæði og fyr-
irmæli skuli könnuð og staðfest strax
á haustin. Ennfremur að á þessu ári
verði efnt til fundahalda snemma
hausts til þess að framfylgja þessu við-
horfi.
2. Þá var samþykkt að kanna öll viðhorf
er að því mega miða, að hafa birgða-
stöðvar í landinu, einkum á þeim svæð-
um sem geta einangrast vegna siglinga.
teppu. Var í því efni samþykkt, að
vinna að því, að hafa birgðastöðvar fyr-
ir kjarnfóður, og í því sambandi verði
kraftfóður-vinnslustöðvar reistar á að
minnsta kosti tveim stöðum á landinu
og að því verði unnið, að allt erlent
fóður verði flutt til landsins í búlk og
kannaðir verði möguleikar á að dreifa
þeirri vöru um sveitirnar á sama hátt.
3. Þá var og rætt um viðhorf til þess að
reisa hér verksmiðjur, er framleiði
heyköggla, er hafa mætti sem forðabúr.
4. Kölin, grasleysið undanfarin ár og á-
burðarnotkun, voru mjög til umræðu
og samþykktir voru gerðar, um að
kalla á fjármagn og framkvæmdir, er
miða skuli að því að skapa meira öryggi
F R E Y R
255