Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1968, Síða 44

Freyr - 01.06.1968, Síða 44
menn að rækta útsæði í svölu og næðinga- sömu loftslagi, þar sem lítið er um blaðlýs. En á hlýjum stöðum, þar sem mikið er af blaðlúsum, úrœttast kartöflumar á fáum árum og hætta að gefa viðunandi uppskeru. Á íslandi erum við blessunarlega lausir við blaðlýs í kartöflugörðum og ber því ekki á blaðvefjuveiki hér. En talsvert er af blaðlúsum í gróðurhúsum og ætti ekki að rækta kartöflur í grennd við þau — og varast að láta útsæði spíra þar inni. Blað- lýs eru og algengar í trjágróðri, en virðast sjaldan leita þaðan á kartöflugrös, enda er oftast úðað til varnar. Vírussjúkar jurtir geta hæglega smitað við snertingu, eins og fyrr var minnzt á í sambandi við verkfæri og klippingu. Ekki þarf heldur annað en að t. d. kartöflugrös sláist saman í stormi. Við það særast jurt- irnar og ekki þarf nema örlítið sár til að auðvelda smitun. Tiglaveiki, sem hér er algeng, a. m.k. í Gullauga-kartöflum, getur borizt með útsæði, verkfærum og milli jurta sem slást saman í stormi. (En blað- lýs bera hana ekki á milli svo vitað sé. A. m. k. þarf ekki blaðlýs til). Komið hefur í ljós hin síðari ár, að sum- ir þráðormar (Nematoda) í jörð geta út- breitt vírussjúkdóma. Þeir lifa á eða í rót- um, (sbr. kartöflu hnúðorminn) og geta smitað þær. Smitefnið berst svo með saf- anum um alla jurtina. „Jarðsmitun“ er kannski all algeng í raun og veru. Sumir vírussjúkdómar ásækja aðeins eina jurtategund. En hins eru líka mörg dæmi, að sami sjúkdómur leggist á marg- ar tegundir jurta. Sjúkdómseinkennin geta verið breytileg. — Oft er skaðinn og vaxtarrírnunin mest, ef fleiri en ein vírus- tegund þjáir sömu jurtina. En þess eru mörg dæmi, t. d. í kartöflum. Einkenni vírussjúkcLóma geta verið mis- jafnlega glögg, eftir ýmsum skilyrðum og jafnvel árstíðum. Erlendis eru t. d. pelar- góniur oft hafðar úti á sumrin og geta verið smitaðar þótt einkenni komi ekki í Ijós fyrr en inni í gróðurhúsi að vetrinum. Mikill köfnunarefnisáburður getur slævt sum einkenni. Önnur koma bezt í ljós í hita og fremur þurru veðri o. s. frv. Utlits- heilbrigðar jurtir geta verið smitberar. Það hefur sannast, ef safi þeirra er settur í aðr- ar jurtir sem eru næmar fyrir kvillanum. Uppskerurýrnun Hér á landi gera vírussjúkdómar verulegan skaða, einkum í kartöflum og ýmsum gróð- urhúsajurtum. Er mörgum sjúkdómanna og vörnum gegn þeim lýst í bókinni Gróður- sjúkdómar, sem Atvinnudeild Háskólans (nú Rannsóknastofnun landbúnaðarins) gaf út árið 1962. Einstaka vírussjúk jurtategund er rækt- uð til skrauts einmitt vegna sjúkdómsins, það er vegna vírusblettanna á blöðunum, sem gera jurtina sérkennilega. Svo er um sumar stofujurtir og garðjurtir með mislit blöð, einkum gulflekkótt. Vírussjúkdómar eru flokkaðir og gefin nöfn, aðallega á tvo mismunandi vegu, það er eftir ytri einkennum (dæmi ráka- veiki, tiglaveiki) og á hinn bóginn eftir því í hvaða jurtategund veikin fannst fyrst. Sá vírussjúkdómur sem sannaðist, að orsakar flekki á blöðum tóbaksjurtar, kallast Nicotianavírus I. og II. o. s. frv. Og sumir af tóbaksvírusunum eru hættulegri öðrum jurtategundum en tóbaksjurtinni. í kart- öflum geta verið ýmsar vírustegundir, t. d. X, (tiglaveiki), y, ofl. Varnir gegn vírussjúkdómum eru fyrst og fremst heilbrigt útsæði, heilbrigðar ung- jurtir og eyðing blaðlúsa. Ein aðferðin til að losna við vírussjúkdóma er sú að rækta ungjurtirnar við sérstakan hita 34—40° og 100° loftraka, en til þess þarf sérstök gróð- urhús. 268 FIEYR

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.