Freyr - 01.06.1968, Blaðsíða 45
. : ........ ' .........■ ............."ÍN
Bréi til mjólkuríramleiðenda um notkun fúkalyfja
Allt frá því að penicillínið uppgötvaðist, í seinni heimstyrjöld-
inni, hefir fjöldi skyldra lyfja komið á markaðinn og gjörbreytt aðstöðu
læknavísindanna í baráttunni við skæða smitsjúkdóma.
Ekki er vafi á, að notkun fúkalyfja hefir stórbœtt heilsufar búpenings og
við íblöndun þeirrra í fóður aukið arðsemi landbúnaðarins.
Aukin notkun þeirra hefir, aftur á móti, skapað alvarleg vandamál fyrir
mjólkuriðnaðinn og neytendur mjólkur.
Þegar fúkalyf eru notuð gegn júgurbólgu finnst oft í nokkurn tíma á
eftir mœlanlegt magn þeirra í mjólkinni, nægilega mikið til þess að
hindra eðlilegan vöxt mjólkursýrugerla, en það getur leitt til örðugleika við
gerð osta, sýrðrar mjólkur, skyrs og getur einnig spillt eðlilegu bragði
smjörs: Mjög litið magn af penicillíni í mjólk getur einnig leitt til ofnæmis
neytenda hennar, það lýsir sér sem lost, er jafnvel getur leitt til dauða.
Mikið mjólkurmagn þarf til þess að þynna fúkalyf í mjólk svo mikið, að
fúkalyfsmagnið verki ekki truflandi á vöxt mjólkursýrugerla, enda Ijóst þar,
sem penicillín í styrkleika 0,05 einingar í ml.mjólkur truflar eðlilegan vöxt
þeirra.
Mjólk úr einum spena með fúkalyfi í getur hindrað vöxt mjólkursýrugerla
í 1000 lítrum af mjólk, ef slík mjólk vœri send í mjólkurbú fyrstu 2 daga eftir
aðgerð.
Einu gildir hvort fúkalyf er notað til inngjafar, sett í leg, dælt í hold eða
sett í júgur, lyfið berst með blóðinu í júgrið og þaðan í mjólkina.
Því gildir óhjákvæmilega:
1. Ef fúkalyf er notað til inngjafar, sett í leg eða dælt í hold, þá er
öll mjólk kýrinnar blönduð lyfinu.
2. Ef fúkalyf er sett í júgur finnst það í miklu magni í mjólk þess júgur-
hluta og einnig stundum í mælanlegu magni i öðrum júgurhlutum.
Á hverri öskju með fúkalyfi til notkunar við júgurbólgu skal álímdur miði
með aðvörun um að blanda ekki mjólk úr júgurhluta, sem er undir aðgerð,
í sölumjólk fyrr en í fyrsta lagi 4 sólarhringum eftir að aðgerð lýkur.
í reglugerð um mjólk og mjólkurvörur stendur i 7. gr. 4. málsgr.: Óheim-
ilt er að selja eða bjóða til söhi mjólk úr kúm, sem við eru notuð lyf, sem
barizt geta í mjólkina og spillt henni.
Að gefnum tilefnum hefir Mjólkursamsalan neyðzt til þess að hefja eftir-
lit með fúkalyfjum í mjólk og þar, sem þau finnast í innvigtaðri mjólk,
verður sú mjólk tafarlaust endursend.
Mjólkursamsalan vill hér með vekja athygli mjólkurframleiðenda á
þessum alvarlegu málum og skírskota til ábyrgðar og þegnskapar allra,
sem mjólk selja, að virða sett ákvæði í þessum efnum.
M J ÓLKURS AMSAL AN
F R E Y R
269