Freyr - 01.06.1968, Side 46
TILRAUNIR MEÐ HRAÐÞURRKAÐ GRAS
Árið 1940 kom út í Sviþjóð bók um
KONSTTORKNING AV GRÖNT FODER
eftir Osvald — Laudon och Axelson. Fjallaði
hún um yfirgripsmiklar athuganir viðvíkj-
andi hraðburrkun og samanburð á ýmsiun
þurrkunarkerfum, sem þá voru í notkun,
aðallega í Englandi.
Síðan hafa Svíar lítt sinnt þessum mál-
um og útbreiðsla hraðþurrkunar er þar
svo til engin.
Svíar eru auðug þjóð og verja miklu fé
til rannsókna og tilrauna. Nú er m. a. verið
að reisa hraðþurrkunarstöð og kerfa allan
búnað viðvíkjandi rekstri hennar til rann-
sóknar og tilrauna á sviði hraðþmrkunar
og nýtingu hraðþurrkaðrar vöru, fyrst og
fremst til fóðurs.
Umræddri stöð, sem byggð er og reka
skal á vegum tilrauna hins opinbera, er
ætlað að leysa úr mörgum gátum viðvíkj-
andi hraðþurrkaðri vöru. Þær spurningar,
sem þarna skal leita að svörum við, verða
meðal annars:
1. Hve gróft skal efnið á heykögglum vera
svo að það verki ekki til lækkunar í fitu-
magni mjólkurinnar?
2. Hve löng skidu stráin vera í kögglunum
svo að ekki myndist sár eða bris í melt-
ingarfærum skepna, er éta þá?
3. Hve mikið má gefa af heykögglum svo
að ekki verði vart meltingartruflana eða
vaxtartruflana hjá ungviði?
4. Hvaða stærð þurrkunarstöðva er heppi-
legust?
5. Hvernig á að skipideggja þurrkunar-
stöðvar og starfsemi þeirra?
6. Er hagfræðdega rétt að nota hraðþurrk-
un fremur en aðrar aðferðir við verkun
grass til vetrarfóðurs?
7. Tæknileg atriði og þurrkunarskdyrði
fyrir ýmsar tegundir jarðargróðurs. 1
þessu sambandi verða og gerðar tilraun-
ir með mjólkandi kýr, með vaxandi geld-
neyti, og sitthvað fleira.
Tilraunastöð þessi, með tilheyrandi kerf-
uðum vélakosti, krefst í stofnkostnað jafn-
virði um 11 millióna íslenzkra króna.
Svíar gera sér vonir imi, að það spari
verulega vinnu við fóðrun kúnna, ef hægt
verður að nota heyköggla sem einasta gróf-
fóður, því að þá má nota færibandsflutning
úr hlöðu í fjós og hraðþurrkað og kögglað
hey krefst miklu minna rýmis en venjulegt
hey í hlöðu.
Hins vegar er fyrirfram vitað, að fram-
leiðsla mjöls af heyi kemur ekki til greina
þegar fóðra skal jórturdýr því að með
mölun er fóðurgUdi rýrt að mun og fleiri
anmarkar fylgja, jafnvel þótt það sé vögglað.
HEYKÖGGLAR Á SKÁNI
Freyr hefur sagt frá því, að Svíar hafi áhuga
á að komast að raun mn hagkvæmni í því að
hraðþurrka gróffóður og köggla svo að
hægt sé að sjálffóðra nautpening að mestu.
Um þetta mál hefur staðið talsverður gust-
ur var í landi að undanförnu.
Nú skeði það m. a. á síðasta srnnri, að
sykurverksmiðjur á Skáni réðuzt í fram-
kvæmdir við grasþurrkun, það er svo auðvelt
þegar lokið er sykurvinnslu fyrra árs og nýt-
ing verksmiðjanna getur aukizt talsvert við
að nota þær tU grasþurrkunar einnig.
Þannig var að farið á tveimur verksmiðjum
og var þurrkað gras af 1300 hekturum lands,
slegið einu sinni og samtals safnað 23.000
270
•F R E Y R