Freyr - 01.06.1968, Side 48
A/O^Ar
Finnsk metkýr
Finnsk Ayrshire-kýr heitir Raita. Hún er 15 ára
og sögð yngsta kýrin, sem skilað hefur meira en
5.000 kg af smjörfitu um ævina. í lok ágústmánað-
ar hafði hún skilað eiganda sínum 100.000 kg af
mjólk, samtals fimm finnskar kýr hafa náð því að
skila 5 lestum af smjörfitu, hún er sú sjötta. Raita
bar í fyrsta skipti 25 mánaða gömul og hefur nú
eignazt 13 kálfa, eða með öðrum orðum borið reglu-
lega ár hvert. Sjö synir hennar eru staðsettir á sæð-
ingastöðvum.
Fóðurþörf
Norska tímaritið Buskap og avdrátt greinir frá
þvi, að í Ameríku telji búfjárræktarmenn, að þeg-
ar dagsnyt kúa sé 20 kg og mjólkin með 4% fitu
þá þurfi 0,39 FE til þess að framleiða hvert kg.
en sé dagsnytin yfir 35 kg á dag sé fóðurþörfin
0,53 á hvert kg. Blaðið bætir því við, að pró-
fessor Breirem telji þessar tölur vafasamar af því
að þær séu varla nógu vel grundvallaðar. Norskar
tilraunir hafa sýnt og sannað, að þar borgar sig ekki
að offra meiru 0,4 FE fyrir hvert kg mjólkur og því
ráðlegt að halda sig framvegis við venjulegan fóð-
urstyrkleika.
Hreindýravanhöld
Hér á landi tjá bændur, að hreindýrin gangi mjög
nærri högum þar sem þau koma í byggð að vetr-
inum, en hreindýrin hafa haldið sig meira í byggð
nú en gerzt hefur fyrr á tímum. Telja sumir að
stofninn hljóti að hafa aukizt nokkuð, þessvegna
leiti hann meira til byggða en fyrr.
Ekki veit FREYR hvort svo muni vera, en hitt
er talið víst, að vanhöld hafa nokkur verið í stofn-
inum, þess vegna hafi heimild til hreindýraveiða
verið takmörkuð.
Vanhöld koma auðvitað fyrir í hreindýrastofninum
hér á landi eins og annars staðar. í hreindýrarækt
Samanna eru stundum mjög tilfinnanleg vanhöld.
Félagsblað bændanna í Sviþjóð segir t. d. frá því
nú í janúar, að á síðasta ári hafi vanhöld í hrein-
dýrastofni sænskra Sama skipt milljónum sænskra
króna.
Þar er tilgreint, að aðeins 80% af kúnum hafi
verið með kálfi síðasta sumar, að 80 af hundraði
dýra á fyrsta ár hafi farist og 30 af hundraði árs-
gamalla en 10% þeirra er eldri voru. Ástæðumar
til þessara miklu affalla eru taldar: kvillar, slys,
rándýr og svo lélegir hagar, sem gera það að verk-
um, að mótstöðuaflið gegn kvillum er lítið. Svo
segir þar, að Samarnir þurfi nauðsynlega að bæta
meðferð dýranna og umhyggju fyrir þeim á ýmsa
vegu þurfi að efla. Er þar því óbeint sagt, að menn-
ingarbúskap í hreindýrarækt þurfi að efla.
Að eldast
— Konur eldast fyrr en karlmenn. Margir fertugir
karlmenn líta út eins og þeir væru þrítugir.
— Rétt er það, en þá má um leið minnast þess, að
flestar þrítugar konur eru fertugar að aldri.
Forsíða
þessa heftis FREYs er af erlendri kornbirgða-
stöð með tilheyrandi myllu og blöndunarstöð.
Sílo, eins og þetta, vantar okkur og viðeigandi
verksmiðjurekstur til kornmölunar, er inn
væri flutt í búlk og svo blöndunarbúnað, og
mundi nægja okkur fyrst í stað tvær svona
byggingar og samstæður, önnur sunnan lands og
hin norðan. Frá þeim mætti svo aka fóðri í
búlkbílum á sumrin og haustin til dreifingar-
stöðva í hinum ýmsu héruðum, nákvæmlega
eins og að er farið við olíudreifingu. Flutningar
til Iandsins, á ómöluðu korni. kosta hreina smá-
muni, þegar flutt er í hæfilega stórum silóskip-
um og þar að auki geymist kornið langtum bet-
ur ómalað en sem mjöl, unz það er tekið til
vinnslu í fóðurverksmiðju.
Fiskimjölið, karfamjölið, síldarmjölið og hval-
mjölið, sem við framleiðum, er afbragðs vara ef
unnin er eins og vera ber, og það er molbúahátt-
ur að fara að eins og við gerum nú að flytja það
fyrst til útlanda og kaupa svo það, eða lakari
próteinvöru, til landsins aftur í blöndum. SUkt
er f jarri hagfræðilegum og hagrænum athöfnum.
Ýmsir spyrja: Hví ckki margar myllur og
blöndunarstöðvar með tilheyrandi sílóum. Því
er til að svara, að þannig yrði stofnkostnaður
óhæfilega mikill og óhæfilegt álag kæmi á vör-
una vegna þunga fjármagnsins. Ætti olíudreif-
ingarfyrirkomulagið að vera okkur þar víti til
varnaðar, en þar byggja tvö eða fleiri félög
geyma á sömu stöðum, og allt dreifingarkerfið
er þar að minnsta kosti þrefalt. Bændur vantar
vel kerfað kraftfóðurskipulag, m. a. til þess að
eiga birgðastöðvar um leið. Ekki er þeirra síður
þörf, það kennir hafísinn okkur.
272
F R E Y R