Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1971, Page 20

Freyr - 01.07.1971, Page 20
Sem dæmi um það, sem hér er greint, má nefna Norður-Noreg. Það er langt frá Þrándheimi norður í Troms, eða að minnsta kosti 1000 km. En marg endur- teknir úttreikningar sýndu og sönnuðu, að hagkvæmara var að hafa eina fóður- vinnslustöð í Þrándheimi og nota svo nú- tíma aðferðir við flutning vörunnar um langvegu, en að hafa blöndunarstöðvar bæði í Troms og Þrándheimi. Bændur í Troms voru áður búnir að skipta við sam- vinnufélögin alla leið suður í Larvík og þótti borga sig, en hagkvæmara hlaut þó að vera að skipta við Þrándheim og spara svo sem 3—400 km siglingaleið með vör- una á þann hátt. Fóðurvinnsluverksmiðja skiptist í stór- um dráttum i fernt, sem sé: Síló fyrir hrávörur Vinnsluvélar og tilheyrandi húsrými Geymslu fyrir unna vöru Afgreiðslurými. Hr ávörugeymsl ur Hráefni til fóðurvinnslu eru í fyrsta lagi kornvörur, í öðru lagi próteinvörur, í þriðja lagi steinefni og svo bætiefni af ýmsu tagi. Lang umfangsmesta hráefnið er kornið, um 80% af fullunninni vöru eða jafnvel meira, en það fer nokkuð eftir hvaða teg- undir próteins eru notaðar í fóðurblönd- 300 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.