Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1971, Side 21

Freyr - 01.07.1971, Side 21
urnar og svo hvaða tegundir gróffóðurs notaðar eru handa jórturdýrum í búum bænda, og hver eru gæði þess. Miðað við öll eðlileg flutningaskilyrði kornvöru og kostnað við flutninga, er eðli- legt og sjálfsagt, að fóðurverksmiðjur standi við höfn, þar sem aðdýpi við liafn- arbakka er svo mikið, að stór, haígeng skip geti lagzt að bakka. Verulegur — og' stund- um mestur — hluti kornvörunnar, sem notaður er í fóðurblöndur, kemur frá korn- ræktarþjóðum á fjarlægum slóðum og er þá eðlilegt og sjálfsagt að fá í einu sem stærstar sendingar, livort sem keypt er á tækifærisverði, þegar umræddar þjóðir verða nauðsynlega að selja, eða um kaup á föstu markaðsverði er að ræða. Stórir farmar í sílóskipum fást fluttir fyrir hreina smámuni milli landa og heimshluta, mið- að við þau farmgjöld, sem við íslendingar erum knúðir til að greiða, eins og nú hagar til með mesta eða alla þungavöru. Á hafnarbakka eru geymslusíló verk- smiðjanna reist, svo að blása megi korninu beint úr lestum í sílóin eða nota færibönd ef betur þykir henta. í sílósamstæðunum er að sjálfsögðu komið fyrir mælitækjum og öryggistækjum, sem nauðsynleg eru til þess að varðveita vöruna óskemmda og fylgjast með því, er gerist í geymslunni, svo sem hitastigi og rakastigi o. fl. Stærð sílóa og fjöldi þeirra er eðlilega háður magni því, sem nauðsynlegt má telja að í geymslum sé hverju sinni, og þá miðað við atburðarás nútímans, þar sem siglingateppur, verkföll á afgreiðslustöðv- um og móttökustöðum geta komið fyrir, svo sem ekki er óalgengt á vorum tímum, og svo ef náttúruöflin trufla samgöngur, eins og gerist þar sem ísalög loka siglinga- leiðum. í Noregi eru til almenn ákvæði um hve mikið skuli vera í landinu, að minnsta kosti, af kornvöru, bæði til manneldis og fóðurs. Miðað við aðstöðu og eðli sam- gangna á íslandi er eðlilegt, að geymslu- rými kornvöru sé að minnsta kosti fyrir 20 þúsund lestir. Að svo miklu leyti, sem gerð annarra fóðurefna leyfir, eru þau einnig geymd í sílóum. í venjulegri sílóasamstæðu eru liólfin jafnan misjöfn að stærð og hæfa þannig mismunandi magni, og að öðru leyti eru botnar þeirra þannig gerðir, að tæknibúnaður verksmiðjunnar getur tekið þar hráefnin og fluttt til blöndunarstöðv- ar. Við það sparast mannsvinna að mestu eða öllu leyti. Vinnsluvélar Sá hluti verksmiðjunnar, sem taka skal við hráefnunum og framleiða fóðurblöndurn- ar, krefst mikils rýmis, enda eru það all- fjölbreyttar vélar, sem til þess eru notað- ar. í fyrsta lagi eru það myllur, sem taka við korninu og valsa það eða mala. Þegar um ræðir fóðurvöru er enginn kostur að fínmala; kurlun og grófmölun er heppi- legri en fínmölun. Séu notaðar olíukökur barf sérstaka knosara til að mylja þær. Vélar til þessara barfa eru alla aflfrekar og í stórum verksmiðjum eru aflgjafar þeirra stundum á annað hundruð hestöfl, rafmótorar, sem hver hreyfir sína vél. Að lokinni mölun, kurlun eða knosun hráefnanna, þarf að flytja hinar ýmsu teg- undir beirra upp í blöndunarsílóin. Hver tegund fyrir sig barf að hafa sitt hólf, frá liólfinu flyzt efnið yfir vigt, sem stillt er til þess að vega sjálfvirkt þann skammt, er hæfir hverri blöndu, en síðan sameinast allar tegundir hráefna í sjálfum blandar- anum. Eftir stærð verksmiðjunnar og af- kastakröfu fer stærð blandarans eða bland- aranna, ef fleiri eru en einn. Ekki er óal- gengt að hver blandari geti þjónað blönd- un, er nemur 30 tonnum á klst. og fer það þá eftir kröfum og þörfum hvort verk- smiðjan þarf að nota einn eða tvo bland- ara eða fleiri, en að sjálfsögðu þarf að miða hvern hluta hennar við framleiðslu- getu, sem samrýmd er í öllum hlutum hennar. Fjöldi geymsluhólfa hráefna, sem 301 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.