Freyr - 01.07.1971, Side 22
tæma skal í blandara, getur verið breyti-
legur, en ekki er óalgengt að þau séu 10—
15 og sér vog fyrir hvert hólf. Auðvitað
má engin vogin svíkja þegar gera skal
blöndu, en hver fyrir sig er fyrirfram stillt
til þess að skila í blandarann ákveðnum af-
mældum skammti í blönduna.
Þegar öllum tegundum hráefnanna hef-
ur verið vel blandað í blandara, svo að allt
er jafnt og vel lagað, fer magnið áleiðis í
gegn um sigti og segulbúnað, þar sem
kögglar skiljast frá og málmar og annað,
sem tjóni getur valdið í búfénu, greinist
frá.
Enda þótt fóðurblöndur séu enn í nokkr-
um mæli sendar notendum sem mjölvara,
er því ekki að leyna, að með mjög ört vax-
andi notkun vögglaðrar og kögglaðrar
vöru er það veigamikill þáttur í meðferð
fóðursins og sívaxandi að breyta mjölinu
í korn, spörð eða bita, sem í fóðurfræð-
inni er skipað í flokka eftir stærðum og
gerðum, á erlendum málum nefnt pellets,
vaffers eða brikkets, en á íslenzku hlotið
lieitin vögglar og kögglar. Óvíst er hvort
vaffers hafa flutzt hingað eða beim verið
gefið íslenzkt heiti, en það gæti verið bein
þýðing á nfninu og kallast þá vöfflur (fóð-
urvöfflur). Eðlilegt má telja, að hér sé
fylgt erlendu reglunni að greina á milli
vöggla og köggla við svo sem 10 mm þver-
mál bitanna.
Þessi meðferð fóðursins varð til og þykir
nú nauðsynleg þegar fóðurvörur eru í vax-
andi mæli fluttar heim til notenda sem
búlkvara. í verksmiðjunni er fóðurblönd-
unni beint inn í sérstakar vélar, þar sem
gufu er blandað í, og undir miklum þrýst-
ingi er fóðrinu beind leið í gegn um pressu,
það þrýstist þá í gegn um pípur og kemur
út sem strönglar um opin, en vídd hvers
ops ákveður þvermál sívalningsins. í með-
ferðinni brotna strönglarnir og mynda
búta og bita, vöggla eða köggla eftir þver-
málinu.
Rétt er að geta þess við þennan áfanga í
hlutverki verksmiðjunnar, að tvennt er
það í sambandi við blöndun og gerð fóð-
ursins, sem krefst sérráðstafana, en það er
íblöndun melassa, sé liann notaður, og skil-
yrðislaust íblöndun steinefna og' bætiefna
(raunar ætti að flokka steinefnin undir
bætiefni). Til þess að nýta melassa er
nauðsynlegt að hafa sérstakan tank, sem
hægt er að sjúga eða dæla úr og hita hrá-
efnið svo að það renni greiðar og blandist
betur í hræruna. Melassi er mjög bragð-
bætandi efni og gerir kraftfóðrið lystugra
en annars, en hefur auk þess mikið næring-
argildi og meira en sykur af því að í mel-
assa er alltaf talsvert af steinefnum.
í fóðurblöndur er alltaf notað nokkuð,
sem á erlendum málum er kallað premiks,
en það er sérgerð blanda af vitamínum,
steinefnum, snefilefnum, fúkkalyfjum og
e. t. v. fleiri efnum. Efni þessi er ekki hægt
að mæla beint inn í fóðurblandara hvert
f. vrir sig, þessvegna eru gerðar og seldar
sérblöndur af nokkrum þessara efna, og
síðan er ákveðið magn þeirrar blöndu fært
inn í fóðurblönduna hverju sinni eftir
þörfum. Á okkar tungu væri ekki rang-
nefni þótt blanda af þessu tagi væri köll-
uð bætiefnablanda, enda þótt í henni kynn/
að vera fleira en það, sem eiginlega flokk-
aðist sérhæft þar undir.
Notkun bætiefnablöndu krefst ekki sér-
búnaðar við blöndunina því að hún getur
farið vfir sína sérvog eins og hverjar aðrar
lirávörur hverju sinni.
Ollum þessum hlutum verða vinnsluvél-
arnar að sinna svo að hver blanda verði
eins og forskriftir mæla fyrir um, enda er
allt stillt til sjálfsafgreiðslu áður en blönd-
un hefst og hver vélasamstæða tekur við
af annarri, þegar sjálfvirknin er í lagi.
Þannig er fjármagninu, sem í vélabún-
aði og húsrými hans er falið, skipað í hlut-
verk, sem mannshöndin annars hefur unn-
ið, en reynslan hefur kennt, hér eins og
annars staðar, að þannig er fjármagnið ó-
dýrara í rekstri en mannsaflið.
302
F R E Y R