Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1983, Blaðsíða 10

Freyr - 15.06.1983, Blaðsíða 10
Ræktunarfélag Norðurlands 80 ára Rœktunarfélag Norðurlands er ein elsta og merkilegasta stofnun í íslenskum landbúnaði, það er 80 ára nú á þessu ári. Félagssvœði þess er Norðurland allt frá Hrútafirði að Grunnólfsvíkurfjalli. Fyrstu stjórn Rœktunarfélagsins skipuðu þeir Páll Briem, amt- maður, Sigurður Sigurðsson, síðar búnaðarmálastjóri, og Stefán Stefánsson, síðar skólameistari. I stjórninni sitja nú Egill Bjarnason, ráðunautur, Helgi Jónasson, bóndi og Ævarr Hjartarson ráðunautur. Rœktunarfélagið stofnaði fyrstu tilraunastöðina í jarðrœkt Itér á landi utan Reykjavík- ur og rak hana í rúm 40 ár. Nú er félagið að hefja tilraunastarf á Möðruvöllum í Hörgárdal. I efnarannsóknarstofu félagsins á Akureyri sem nú hefur starfað um 20 ára skeið eru efnagreind jarðvegs- og heysýni fyrir bœndur á Norðurlandi. Óseyri 2 á Akureyri, aðsetur Ræktunarfélags Norðurlands. Parhafa einnig aðsetur Rannsóknarstofa Rœklunarfélagsins, Búnaðar- samband Eyjafjarðar, Búnaðarbókasafnið, Byggingafulltrúarfyrir Eyjafjarðarsvœðið og Ungmennasamband Evjafjarðar. (Ljósm. Freyr - J.J.D.). 458 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.