Freyr - 15.06.1983, Page 11
Þannig var umhorfs í tilraunastöðinni á Akureyri árið 1904. Starfsmönnum, sem
líklega hafa verið þarna á námskeiði, er raðað til myndatöku, verkfœraskúr er í
baksýn. Þarna átti síðar eftir að rísa Gróðrarstöðin.
Sigurður Sigurðsson.
arfélagsins og sá sem ruddi því
brautina. Hann var fyrsti fram-
kvæmdastjóri félagsins auk skóla-
stjórnar á Hólum og hann var sá
sem vann ötullegast að því að
kynna almenningi hugsjónir þess
og markmið. Sigurður var maöur
með köllun til starfs. Hann var
fæddur foringi sem hreif alla með
sér og á athafnasamri ævi vann
hann gifturíkt starf í þágu íslensks
landbúnaðar.
Gróðrastöðin.
Stefnuskrá Ræktunarfélagsins er
að finna í 2. grein félagslaganna,
en þar segir að tilgangur félagsins
sé: 1) Að láta gera nauðsynlegar
tilraunir til jarðræktar á Norður-
landi. 2) Að útbreiða meðal al-
mennings þekkingu á öllu því sem
að jarðrækt lýtur, og líkindi eru til
að komi að gagni. Þá er það
markmið sett í 3. gr. að tilrauna-
stöð verði komið á fót á Norður-
landi. Öllum þessum stefnumið-
um hefur verið fylgt í starfi Rækt-
unarfélagsins.
Akureyrarbær gaf félaginu land
undir tilraunastöð árið 1904. Var
þegar hafist handa að girða, ræsa
og brjóta landið. Hafnar voru til-
raunir með sáningu grasfræs og á
nokkrum stöðum voru gerðar til-
raunir með áburð. Er talið að þá
hafi tilbúinn áburður fyrst verið
reyndur norðanlands. Tré voru
gróðursett í landi félagsins, hafin
Stefán Stefánsson.
maður sem vildi reisa atvinnuvegi
landsins og þá ekki síst landbún-
aðinn á vísindalegum grundvelli.
Hann dó fyrir aldur fram aðeins
48 ára að aldri. Stefán Stefánsson
varð formaður eftir Pál og allt til
dauðadags 1921. Hann var glæsi-
legur vísindamaður og skólamað-
ur og þekktur heima og erlendis
fyrir brautryðjendastörf sín í ís-
lenskri grasafræði.
Sigurður Sigurðsson frá Drafla-
stöðum var yngstur þessara
manna. Hann varð vegna mennt-
unar sinnar sérfræðingur Ræktun-
Páll Briem.
Um miðbik aldarinnar hnignaði
starfsemi félagsins, m. a. vegna
skipulagsbreytinga í tilraunamál-
um, en síðustu tvo áratugi hefur
starf þess eflst með nýjum við-
fangsefnunt. Félagið hefur nú tvo
sérfræðinga í þjónustu sinni, en
meginverkefni þess er rekstur og
umsjá Rannsóknarstofu Norður-
lands og Tilraunastöðvarinnar á
Möðruvöllum.
Frumherjarnir.
Formaðurinn, Páll Briem, var eld-
hugi en þó raunsær og víðsýnn
FREYR — 459