Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1983, Page 15

Freyr - 15.06.1983, Page 15
Rannsóknarstofa Ræktunarfélags Norðurlands efnagreinir allt að 1800 sýni frá bændum á ári Þórarinn Lárusson fóðurfræðingur tók við framkvœmdastjórn Rœktunarfélags Norður- lands árið 1981 af Jóhannesi Sigvaldasyni. Fréttamður Freys bað Þórarin að segja lesendum frá starfi hans hjá stofnuninni. Rannsóknarstofa Ræktunarfé- lags Norðurlands tók til starfa árið 1964 og hófst þá endurreisnar- tímabil í starfi Ræktunarfélagsins, sagði Þórarinn. A rannsóknastofunni eru eink- um efnagreind jarðvegs- og heysýni af Norðurlandi. Ar hvert berast jarðvegs- og heysýni til efnagreiningar víðsvegar að úr fjórðungnum. Við vinnum hér tveir sérfræð- ingar, Bjarni Guðleifsson og ég. Við skiptum þessu þannig milli okkar að ég er aðallega með fóð- urfræði en Bjarni sér um jarðvegs- fræðina. Rekstri Rf.Nl. fylgir ým- islegt vafstur, sem ekki þarf að tíunda. Að öðru leyti er starf mitt leiðbeiningar í sérgrein minni. Þær leiðbeiningar byggjast að nokkru leyti á þeim efnagreiningum, sem hér eru stundaðar á heyi frá bænd- um og á rannsóknum og athugun- um sem hér hafa verið gerðar. Meltanleikarannsóknir byrjuðu hér að marki árið 1973, en áður Pórarinn Lárusson. höfðu aðrar efnagreiningar á heyi verið gerðar frá því árið 1964 er rannsóknarstofan var stofnsett. Nota bændur sér mikiö þessa þjónustu? Já, ég held ég megi segja það. Það eru efnagreind sextán- til átján- hundruð sýni á ári og sá fjöldi hefur verið stöðugur allan tímann. Þetta eru mikið sömu mennirnir sem láta efnagreina. Sumir láta taka sýni annað og þriðja hvert ár, en við erum búnir að efnagreina hjá flestum bændum á svæðinu einhvern tímann á þessu tímabili. En að jafnaði er tæpur helmingur bænda á félagssvæðinu fastir við- skiptavinir rannsóknarstofunnar. Sýnin berast okkur frá ráðu- nautum víðsvegar að af Norður- landi og einnig frá öðrum búnað- arsamböndum, sérstaklega frá Austurlandi. Unnið er úr sýnum hér á rannsóknarstofunni frá því í byrj- un september og fram yfir áramót og erum við þá að jafnaði fimm hérna á stofunni. Eftir þann tíma erum við með sem svarar þremur stöðugildum. Nú vinna hér tvær stúlkur hálfan daginn hvor. Hér eru líka stundaðar aðrar efna- greiningar, fyrir ýmsa aðila. Við höfum t. d. gert talsvert af því að efnagreina loðdýrafóður og erum reiðubúnir til að halda því áfram. Á undanförnum árum höfum við að ósk skólastjóra hér í bænum lánað efnarannsóknastofuna hérna til þess að kynna nemend- um starfsemina. Hvernig fer Ræktunarfélagið að því að standa straum af starfsemi sinni? í grófum dráttum kemur þriðjung- ur frá ríkinu, annar frá búnaðar- samböndum á Norðurlandi og hinn þriðji fæst fyrir sýnatöku. mið að taka vísindin í þjónustu íslensks landbúnaðar. Enda þótt skin og skúrir hafi skipst á á ferli Ræktunarfélags Norðurlands hafa forráðamenn þess aldrei misst sjónir á upphaf- legu markmiði sínu. Nú starfar félagið með auknum þrótti, enda hafa forráðamenn þess verið fund- vísir á þörf verkefni. Ræktunarfé- lag Norðurlands hefur með starfi sínu í 80 ár lagt drjúgan skerf til þess að breyta íslenskum landbún- aði frá rányrkju til ræktunar. Það er ósk og von Freys að félagið megi enn um langa framtíð verða norðlenskum landbúnaði lyfti- stöng og stuðningur og að vegur þess megi eflast og vaxa. Júlíus J. Daníelsson. Heimildir: Ársril Rœktunarfélags Norð- urlands, einkum starfsskýrslur fram- kvcemdastjóra og ritgerðir Jóhannesar Sigvaldasonar, Ólafs Jónssonar og Steindórs Sleindórssonar. FREYR — 463

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.