Freyr - 15.06.1983, Page 16
Hvaða ný viðfangsefni eru efst á
baugi nú hjá Rfl. Nl.?
f’að er einkum tvennt. Annars
vegar heimaöflun, eins og við
nefnum það, og hins vegar rann-
sóknir á kali og leiðbeiningar í
sambandi við það. Um heimaöfl-
un hef ég áður fjallað í Frey, en
hún miðar í stuttu máli að því að
bændur búi sem mest að sínu.
Heimaöflunarnefnd Rfl.NI. er nú
starfar hefur garðrækt að við-
fangsefni. Mun hún skila skýrslu á
næstunni.
Bjarni Guðleifsson hefur með
höndum rannsóknir á kali (sjá
viðtal við hann). Við höfum, sagði
Þórarinn, tekið upp þá nýjung að
einbeita okkur að sérstökum
leiðbeiningarverkefnum. Má þar
nfna verkefnið sláttutíma og
heyverkun og mælingar á súg-
þurrkunarkerfum með tækjum,
sem Ræktunarfélagið hefur fest
Á Rutmsóknarstofu Norðttrlands, eins og hún heitir réttu nafni, komu til efnagreining-
ar jarðvegs- og heysýni af öllu Norðurlandi. T. v. Gunnfríður Hreiðarsdótlir starfsmað-
ur stofunnar. (Ljósm. Freyr-J.J.D.).
kaup á, en héraðsráðunautar á
félagssvæðinu gera mælingar hjá
bændum með þeim. Ekkert
heildaruppgjör hefur farið fram á
þessum upplýsingum. en augljóst
er að á þessu er full þörf og þótt
fyrr hefði verið.
J.J.D.
Þol túngrasa er sá eiginleiki þeirra sem
mestu máli skiptir
Viðtal við Bjarna E. Guðleifsson, ráðunaut og sérfræðing hjá Ræktunarfélagi
Norðurlands.
Bjarni E. Guðleifsson.
Ég starfa hér hjá tveimur stofnun-
um, að þremur fjórðu hjá Rækt-
unarfélagi Norðurlands og að ein-
um fjórða hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins og hef m. a. að-
stöðu á Tilraunastöðinni á Möðru-
völlum, sagði Bjarni. Hjá Rækt-
unarfélaginu hef ég yfirumsjón
með jarðvegsefnagreiningum.
þ. e. þjónustuefnagreiningum
fyrir bændur á Norðurlandi og auk
þess starfa ég á báðum stofnunun-
um að rannsóknum á kali, sem er
mitt aðalverkefni.
Frostþol og svellþol grasategunda.
TeKund Stofn Frostþo! °C Svellþol, dagar
Strandreyr Löken - 7. 20
Axhnoöapuntur Hattfjclldal -10 14
Beringsupntur Nordcoast -11 46
Hávingull Saltcn -11 ' 19
Túnvingull Leik -11 30
Vallarfoxgras Engmo -12 36
Háliöagras Oregon -14 23
Vallarsveifgras Holt -15 23
Taflan sýnir hve mikið frost fræplöntur þola og hve marga daga þær þola
að vera inniluktar í svellum. Hærri tölugildi (þ. e. meira dagar) sýna meira þol grastegundanna. frost og fleiri
464 — FREYR