Freyr - 15.06.1983, Blaðsíða 18
Ingimar Jóhannsson og
Björn Jóhannesson
Fiskeldi og fiskrækt í Kelduhverfi
A undanförnum árum hefur Fiskifélag íslands staðið fyrir athugunum á fiskeldis- og
fiskræktarstöðu í Kelduhverfi. Ljóst er að óvíða á landinu er jafn mikið af volgu
lindarvatni, sem hentar seiðaframleiðslu, og í Kelduhverfi. Við Litluá í Kelduhverfi
hefur Fiskifélagið í samvinnu við Krossdal hf. kannað vatnsgœði með tilliti til
laxaseiðaframleiðslu. Við Litluá má áœtla að hœgt sé að fá 1—2 þús. sek/l. af 12—14°C
heitu vatni, sem hentar til seiðaframleiðslu.
Ingimar Jóhannsson.
í Lóni í Kelduhverfi fóru á árun-
um 1976—80 fram umfangsmiklar
athuganir á vegum Fiskifélags ís-
lands á laxeldisaðstöðu. Fisk-
eldisfyrirtækið ISNO hf. (stofnað
af Tungulaxi hf. og norska laxeld-
isfyrirtækinu MOWI) hefur nú í
framhaldi af athugunum Fiskifé-
lagsins hafið rekstur tilrauna eldis-
stöðvar sem er langstærsta fyrir-
tæki á þeim vettvangi hér á landi.
Framkvæmdastjóri ISNO hf. er
Páll Gústafsson viðskiptafræðing-
ur. P.O. Brandal fiskifræðingur
hefur einkum unnið að þessu
verkefni af hálfu norska fyrirtæk-
isins MOWI. Starfsmenn ISNO
hf. hafa safnað þeim upplýsingum
sem hér koma fram um laxeldið í
Lóni. Hér á eftir verður stuttlega
gerð grein fyrir laxeldinu í Lóni
1981—1982 og athugunum á volgu
lindarvatni við Litluá.
Framkvæmd tilrauna.
Fyrstu laxeldistilraun ISNO
lagsins í flotkvíum í Lóni hófst
júní 1980. Vaxtarhraði í þeirri ti
raun varð ekki eins og best verði
á kosið, og náðist fiskurinn í ui
2.5 kg meðalþyngd eftir um 2
mánaða eldi. Einkum var það U
leg vinnuaðstaða í Lóni, sem oli
því að ekki var hægt að fóðr;
fiskinn reglulega. Aðstaðan va
hinsvegar bætt sumarið 1982 o{
byggð bryggja ásamt skemmu oj
íbúðarhúsi. Með þessari bættu að
stöðu er hægt að sinna eldinu mun
betur, og kemur það einkum fram
í jafnari og meiri fóðurgjöf og
örari vaxtarhraða fisksins.
Úr fyrstu tilraun ISNO í Lóni,
sem hófst sumarið 1980, var slátr-
að haustið 1981 og 1982 um 12
tonnum af laxi, en auk þess voru
1000 fiskar teknir til áframhald-
andi eldis og hrognatöku síðar.
Yfirlit yfir fjölda og stærð laxa í
flotbúrunum í Lóni, vaxtarhraða,
fóðurnotkun.
Nú eru í eldi í Lóni um 55 þúsund
laxar. Til samanburðar má geta
þess að heildarstangveiðin á
landinu var sl. sumar um 35 þús-
und laxar.
Eldið fer fram í 10 búrum, sem
hvert um sig er 144 m: að flatar-
máli og um 7 m að dýpt. Laxinn er
alinn á norsku þurrfóðri (Skrett-
Björn Jóhannesson.
ing). Til að framleiða 1 kg af fiski
hefur þurft um 2 kg af þurrfóðri.
Á línuriti 1 og 2 má sjá vöxt
fisksins á mismunandi tímum. Á
línuriti 2 má sjá vaxtarhraða fisks
af Kollafjarðarstofni og fisks af
Laxamýrarstofni á árinu 1982.
Mjög fróðlegt verður að fylgjast
með vexti þessara fiskstofna, og
þó einkum hvort Kollafjarðar-
stofninn verður snemma kyn-
þroska í eldinu.
Hlutfall kynþroska fisks í búr-
unum er mjög mismunandi. í búri
nr. 3 (1 árs seiði við upphaf eldis í
Lóni frá Tungulaxi; eldi í Lóni
hófst í júní 1981) var hlutfall kyn-
þroska lax um 40% eftir 17 mán-
aða eldi í Lóni. í búri nr. 4 (2 ára
seiði við upphaf eldis í Lóni, frá
Tungulaxi: eldi í Lóni hófst í júní
1981) var hlutfall kynþroska lax
466 — FREYR