Freyr - 15.06.1983, Qupperneq 26
þar sem meiri hluti af þeim laxi
sem sleppt var, dvelur 2 ár í sjó.
Fyrstu sleppingar Fiskifélagsins
í Lón sumarið 1978 virtust lofa
mjög góðu og veiddust í net sam-
tals tæp 6% og var sá lax að mestu
stórlax (2 ár í sjó). Seinni slepp-
ingar Fiskifélagsins hafa ekki
skilað eins góðum árangri.
Ljóst er að veiðar Færeyinga í
sjó virðast hafa mikil áhrif á laxa-
gengd, einkum á Norðaustur- og
Austurlandi. Það má því ætla að
árangur af hafbeitartilraunum
verði ekki nægjanlega góður á
meðan mikill hluti hafbeitarlaxins
er veiddur á hafi.
Úthafsveiðar Færeyinga þarf
því tafarlaust að stöðva, til að
tryggja framþróun til hafbeitar.
Heimildir:
1. Aðalsteinn Sigurðsson. Rannsóknir í
Lóni í Kelduhverfi sumarið 1963.
(Óbirt).
2. Ingimar Jóhannsson, Björn Jóhannes-
son 1977. (Óbirt skýrsla).
3. Ingimar Jóhannsson, Björn Jóhannes-
son 1979. Ægir nr. 3, 127-132, 1979.
4. Ingimar Jóhannsson, Laxeldistil-
raunir í Lóni í Kelduhverfi 1980—
1982. Ægir nr. 3, 114—118, 1982.
5. Erlingur Hauksson. Könnun á botn-
dýralífi í Lónum í Kelduhverfi sumarið
1979. Náttúrugripasafnið á Akureyri
fjölrit nr. 11 1982.
Molar
Norðmenn flytja út lax fyrir jafnvirði 3 milljarða íslenskra króna á þessu ári
Tekjur Norðmanna af laxeldi
verða yfir 1 milljarður norskra
króna (3 milljarðar ísl. kr.) á
þessu ári. Á sl. ári nam það jafn
miklu og togaraafla íslendinga.
Laxeldi vex nú ört í Noregi eða
um 50% á ári. Segir í frétt frá
Norinform að í fáum atvinnu-
greinum séu horfur taldar jafn
góðar þarlendis og í fiskirækt.
Umsækjendur um leyfi eru á
löngum biðlista, en undanfarið
hafa fá leyfi verið veitt. Þeir sem
þegar eru komnir með fiskeldi
hafa hinsvegar aukið við sig.
Sjávarútvegsráðuneytið norska
hefur gefið til kynna að skilyrðum
fyrir leyfisveitingum verði breytt.
Ef af því verður er talið að mörg
ný fiskiræktarleyfi verði veitt
næsta ár.
Sölusamlag fiskiræktenda í Nor-
egi telur að útflutningur fyrirtæk-
isins verði hálfur annar milljarður
norskra króna árið 1985. Spáð er
gríðarlegri aukningu í fiskirækt
víða um heim næstu ár, svo mik-
illi, að upp úr aldamótum muni
framleiðsla á ræktuðum fiski
verða jafnmikil veiddum fiski.
Norðmenn telja varhugavert að
leggja allt í eina fiskitegund: lax.
Þess vegna hyggjast þeir fitja upp
á eldi annarra fiska. Þegar er
nokkurt þorskeldi hafið í Noregi,
og einnig urriðaeldi. Telja Norð-
menn margra kosta völ í fiskeldi,
Fátt er talið þrárra en sauðþráinn.
Þeir Hrísbrúarfeðgar, Ólafur karl
og synir hans, fóru þó létt með að
sigrast á honum. 1 Innansveitar-
kroniku lýsir Halldór Laxness
þessum frábæru eiginleikum
þeirra feðga. Þar segir m. a.:
„Undur að svo lítt gánghnáir
menn skyldu eyða ævinni til að
reyna sig í þolhlaupi við stökkfrá-
ar sauðkindur. Þó það sé lyginni
líkast höfðu þessir fótstirðu menn,
ekki nema í meðallagi sjónskarpir
og nokkuð brjóstþúngir, einlægt
betur í kapphlaupinu við þessa
eldfljótu skepnu, og það kom sig
af því held ég, að þeir fóru ætíð
svo hægt að sauðkindin misti
áhuga á leiknum; sumpart einnig
af því að þó sauðkindin sé þrá þá
sé vel á málum haldið, enda eru
landkostir þar góðir til slíkra
hluta.
voru þessir menn sýnu þrárri. Þeir
mistu aldrei þolinmæðina þó
skepnan hlypi undir þeim í fjalli,
upp snarbratta urð, sjónvitlaus af
stygð. Aldrei töluðu þeir um að
þetta væri erfitt, hugtakið erfitt
var ekki til. Mætti bæta því við að
vitrir höfundar telja þá hjátrú
sprottna af getuleysi að til séu
erfið verk; þau ein verk séu erfið
sem unnin eru með rángri aðferð.
Þó þeir sæu illa kom aldrei fyrir að
kind kæmist undan þeim á fjalli,
en öllu komu þeir til bygða án
þess sæust á þeim þreytumerki
ellegar þeir fyndu til mæði. Þeir
kunnu ekki að flýta sér en þeir
kunnu ekki heldur að vera of
seinir."
Lausl. eftir Norinform.
Skijáf í skræðum__________
Rósberg G.Snædal
Hrísbrúarfeðgar og sauðkindin.
474 — FREYR