Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1983, Blaðsíða 32

Freyr - 15.06.1983, Blaðsíða 32
Arvid Kro Lómatjörn Loðdýrarækt „loftbóla“ eða atvinnuvegur? Undanfarin ár hefur margt verið sagt og skrifað um loðdýrarœkt hér á íslandi. Sumt hefur líkst meira loftköstulum en frœðslu eða upplýsingum. Arvid Kro er af norsku bergi brotinn og ólst upp á Jaðrinuni, sem er á Rogalandi. Fadir hans var loddýrabóndi. Arvid stundaði nám á bœndaskólanum á Torpo i Hallingdal med loðdýrarœkt sem sér- grein. Hann kom til íslands árið 1972 og er nú bóndi á Lómatjörn. Áriö 1979 hófst refarækt að nýju hér á landi, en minkarækt var endurreist u. þ. b. 10 árunt áöur. Síðan refaræktin hófst að nýju hefur verið rekinn mikill áróður fyrir henni og í dag eru hér yfir 80 refabú, dreifð um allt land og víða eitt og eitt á stangli. Leyfisveiting- ar hafa miðast of lítið við að byggja upp í þyrpingum eða kjörnum. Félagsleg samvinna og fræðsla frá eldri búum til þeirra yngri er nauðsynleg til þess að vel takist til, alveg frá pörun til skinnaverkunar. Fóðurþátturinn er mikilvægastur. Fóðurgæði, fóðurverð og flutn- ingskostnað tel ég vera stærstu atriðin hvað varðar loðdýrarækt á íslandi, ef hún á að eiga framtíð fyrir sér. Núverandi og verðandi loðdýrabændur þurfa að athuga vel hverjir þessir kostnaðarliðir verða og ennfremur hvort grund- völlur sé fyrir fóðurstöð í sameign bænda eða með hreppi, kaupfé- lagi eða frystihúsi. Mér finnst hreppsfélög hafa gert allt of lítið af því hérlendis að stuðla að upp- byggingu loðdýraræktar. í Noregi hafa hreppsfélög skipulagt loð- dýrasvæði innan hreppanna og það væri einnig mjög æskilegt hér, t. d. í hæfilegri fjarlægð frá sjávar- þorpum. Retureða minkur? Ég hef oft verið spurður að því hvort það sé ekki rniklu auðveld- ara að vinna við ref en mink. Það er í sjálfu sér ósköp skiljanlegt að menn spyrji þannig. Svarinu vil ég skipta í tvo liði. Annars vegar hvað varðar daglega hirðingu og hins vegar tekjur. Þá skiptir að sjálfsögðu einnig máli hve loð- dýrabúskapurinn á að vera stór í sniðum, þ. e. algjör aukabúgrein (nánast tómstundaiðja) hliðarbú- grein, aðalbúgrein eða einungis loðdýrarækt. Minkaræktin er hentugri sem hliðarbúgrein eða aðalbúgrein meðal fjárbænda þar sem vinnu- álag stangast síður á. Mesta vinnu- álagið við mink er í pörun frá ca 8.—27. mars, við fráfærur, sem eru ca 6 vikum eftir got. þá í júlí— ágúst, þegar hvolpunum er stíað í sundur og síðast við pelsun í nóv,- des. Lífdýraflokkunin. Ég kemst ekki hjá því að minnast nokkrum orðum á lífdýraflokkun. Framkvæmd hennar á sl. hausti var að mínu mati skipulögð af mikilli þröngsýni og í fjármagns- svelti. Sennilega varð hún þó dýr- ari en til var ætlast vegna tvíverkn- aðar. Fyrsta vitleysan var að eng- inn vissi hversu inargar læður þurfti til að hafa nóg af lífdýrum handa nýju búunum og til við- halds og stækkunar hjá þeim búum, sem fyrir voru. I fyrri um- ferðinni voru einungis valin A og B dýr. Seinni flokkunaraðferðinni hefði betur verið sleppt, því að þá gekk ekki sama yfir alla. Til frek- ari útskýringar skal þess getið, að þá átti að flokka 20% í C-flokk miðað við þann læðufjölda, sem fór í A og B flokka í fyrri umferð. Á nokkruin búum var þessi flokk- un framkvæmd þannig, að þá fundust A og B dýr á meðal óflokkuðu dýranna, en þegar 20% kvótanum var náð var flokkun hætt. Á öðrum búum var haldið áfram að leitá eftir A og B dýrum eftir að C-kvótanum var fullnægt. Oft hafa verið birtar greinar 480 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.