Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 7

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 7
Hilda hf. 20 ára Fyrir nýja hugmynd að vöru færðu eitt stig, fyrir að framleiða hana færðu tíu stig, en fyrir að selja vöruna færðu hundrað stig. Fetta mat á mikilvægi sölunnar í ferli vöru frá fram- leiðanda til neytenda mun vera japanskt, en fáir ef nokkrir hafa náð meiri árangri við að koma framleiðslu sinni á framfæri en Japanir á síðustu áratugum. Á 20 ára afmæli fyrirtækisins Hilda hf. koma þessi spaklegu orð upp í hugann, en fyrirtækið hefur náð ótrúlegum árangri við að koma á framfæri íslenskri framleiðslu og skapa þannig miklum fjölda fólks atvinnu við arðbær störf. Ánægjulegt er að undirstaða hinna miklu umsvifa sem Hilda hf. hefur með höndum er íslenska sauðkindin og íslenska ullin en hún á sér vart eða ekki hliðstæðu annars staðar í heiminum. Þeir sem bera hag dreifbýlis á íslandi fyrir brjósti eiga Hildu hf. mikið að þakka. Á síðustu árum hafa verið stofnaðar fjölmargar saumastofur vítt og breitt um landið sem hafa fengið það verkefni að vinna ullarvörur til útflutnings. Leiða má líkur að því að töluverð- ur hluti þess fólks sem þar hefur fengið vinnu, en obbinn af því eru konur, hefði að öðrum kosti verið atvinnulaus. Vissulega eiga fleiri útflutningsfyrirtæki en Hilda hf. þarna hlut að máli en óhætt er að nefna það fyrirtæki í sömu andrá og risana í íslenskum ullariðnaði, Ála- foss hf. og Sambandsverksmiðjurnar. Auk þess hefur Hilda hf. með umsvifum sínum og kynningarstarfi lagt mikið af mörk- um við að kynna land okkar og þjóð úti um heim og verður seint metið hvaða árangri það hefur skilað, t. d. við að vekja athygli ferða- manna á íslandi. Það er nokkuð árvisst að fundir bænda geri samþykktir um að efla þurfi sölustarfsemi með afurðir íslensks landbúnaðar. Oft kemur einnig fram að hér á landi sé hörgull á þjálfuðu fólki til sölustarfa. Það er því óhætt að segja að Tomas Holton, stofnandi Hildu hf., hafi komið eins og kallaður til starfa hér á landi. Hugmyndin sem sló niður í hann að bjóða landsmönnum sínum í Bandaríkjunum íslenskar lopapeysur til kaups bar ótrúlegan árangur. Síðan hefur hver nýjungin rekið aðra hjá fyrirtækinu eins og rakið er á öðrum stað í þessu blaði. Ljóst er að velgengni sína á Hilda hf. því að þakka að stofnandi fyrirtækisins, Tomas Holt- on, er frábærlega snjall í starfi sínu. Sem Bandaríkjamaður að uppruna er hann á heimaleikvelli á bandaríska markaðinum, þekkir hann í þaula og þá sálfræði sem þar á við. Til marks um snjöll vinnubrögð Hildu hf. er að fyrirtækið selur milliliðalaust til verslana og verslanakeðja í Bandaríkjunum. Jafnframt hefur þróast upp það samstarf við þessar verslanir að sölustjórar þeirra koma árlega til íslands og taka þátt í að velja þau föt, eða m. ö. o. þá fata-„línu“, sem á boðstólum er á hverju ári. Þegar verslanir eru þannig með á boðstólum fatnað sem starfsmenn þeirra hafa sjálfir haft hönd í bagga um að framleiða, má vænta hámarksárangurs í sölunni. Flest ævintýri hefjast í orðunum: einu sinni var. Ævintýrið um Hildu hf. er hins vegar að gerast mitt á meðal okkar, hér og núna. Það hófst á því að útlendingur kom í heimsókn með konu sinni til landsins hennar, fámennrar eyju langt úti á hafi, og kom þar auga á möguleika sem þessi eyja hafði upp á að bjóða og aðrir höfðu ekki nýtt. Hann átti ýmissa kosta völ en valdi þennan. Hann hefur virkjað fjölda manns til að taka þátt í ævintýrinu með sér og fyrst og síðast er það ísland sem hefur notið þessa framtaks. M.E. FREYR — 927

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.