Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 30

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 30
Fœðing hans sannar að nota má svo gamalt nautasœði með góðum árangri. Kálfur getinn með þrítugu sæði. Það bar til í apríl síðastliðnum að nautkálfur fæddist á býli bræð- ranna Harold og Charles Lattin í Darlington-hreppi í Wisconsin í Bandaríkjunum. Kálfur þessi er brautryðjandi einstaklingur eins og nú verður sagt frá. Faðir hans, Cottonade Emmet að nafni, var eitt besta þarfanaut ABS, nautgriparæktarsambands Wisconsin fylkis fyrir 30 árum. Það fylki er stundum nefnt mjólk- urríki Bandaríkjanna vegna hinn- ar miklu mjólkurframleiðslu sem þar er stunduð. Cottonade Em- met var notaður í byrjunarrann- sóknum við að frysta nautasæði til geymslu. Síðasta opinbera verk Emmets áður en honum var lógað vegna elli og hruntleika var að punga út vænum sæðisskammti hinn 19. nóvember 1953. Tæknimenn nautgriparæktarsambandsins tóku nú sæðið til handargagns, frystu það og geymdu í fljótandi ammon- íaki í 160 gráða frosti (á Celsíus), allt til 16. júlí 1983. Þann dag fór Bob McDermott frjótæknir með eitt af sæðishylkjunum til býlis Lattins, þýddi sæðið varlega og sæddi með því kú af Holstein- kyni. Árangur af þessu varð hraustur og fallegur nautkálfur sem fæddist einum 30 árum eftir að faðir hans kvaddi heiminn. Sá er fyrst fann aðferðina við að frysta nautasæði var dr. Cristop- her Polge við Cambridge-háskóla í Englandi, snemma á sjötta ára- tugnum. Dr. Polge var boðið vest- ur um haf, til þess að kenna heimamönnum þar að geyma sæði. Jurtir hrópa á vatn John Milburn, vísindamaður sem stundar rannsóknir á jurtum við háskóla einn í Ástralíu, þarf ekki að velkjast í vafa um hvenær jurtir þurfa vatn. Hann heyrir það. Milbrun hefur hannað hljóð- nema með magnara sem nemur hljóð þau sem verða við vökva- flæði í jurtafrumum og hann hefur líka lært „vatnsmálið". Af því leiddi, að fyrsti kálfurinn í Vesturheimi, getinn með frystu sæði fæddist í Wisconsin hinn 29. maí árið 1953. Nautgriparæktarmenn telja að aðferðin við að frysta sæði sé ein hin merkasta uppgötvun í rækt- unarstarfinu síðustu 150 árin. Með henni geta vísindamenn ekki að- eins ráðið erfðavísum einstakra nauta heldur ráða þeir líka yfir tækni til þess að flytja góða eigin- leika þessara kostagripa um víða veröld. Ekki er óvanalegt að sæddar séu um 250 000 kýr með sæði úr einu nauti. I tímaritinu Advanced Animal Breeder, það- an sem þessi frétt er tekin, segir að gagnið af fyrrnefndri aðferð komi fram í því að mjólkurfram- leiðendur geti nú framleitt jafn- mikla mjólk og fyrir 25 árum með helmingi færri kúm. Vísindamenn hafa lengi álitið að frosið nautasæði geti, sé það rétt meðfarið og rétt geymt, enst von úr viti. Tíminn einn getur þó leitt í ljós hvort þeir hafa á réttu að standa eður ei, en kálfurinn sem hér var sagt frá er lifandi sönnun þess að nautasæði getur verið sprelllifandi eftir a. m. k. 30 ára geymslu við rétt skilyrði. J. J. D. Hann skýrir svo frá að þegar jurt þjáist af vatnsskorti stöðvist vökvaflæðið með þeim afleiðing- um að frumurnar fyllast fyrst af gufu og síðan af lofti. Af þessu líður jurtinni svo illa að hún fær eins konar taugaáfall og sendir frá sér boð eða bylgjur sem nema má með tækinu fyrrnefnda. Jurtin hrópar m. ö. o. á vatn. 11 **'* • ín* Molar 950 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.