Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 25

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 25
Axel Magnússon, ylræktarráðunautur B. í. Heilsupostular án jarðsambands Hinn 14. sept. 1984 birstist grein eftir Georg Kovacs, sam er lektor við plöntusjúkdóma- deild Landbúnaðarháskólans í Kaupmannahöfn, í Landsbladet, en það er málgagn dönsku bœndasamtakanna. Kovacs er fjölmenntaður og mjögfœr maður og mér fannst grein hans eiga erindi við íslenska lesendur. Biodynamisk ræktun, sem á ís- lensku hefur verið nefnd „lífefld" ræktun er ræktun án notkunar verksmiðjuframleiddra efna svo sem áburðar og efna til að eyða illgresi og skordýrum og koma í veg fyrir sjúkdóma. Biodynamisk ræktun á sér stuðningsmenn hér á landi og ýmislegt hefur verið rætt og ritað um málið í íslenskum fjölmiðlum. Þessi ræktunaraðferð á sér þó meira áberandi fylgis- menn í nálægum löndum þar sem hiti á vaxtarskeiði jurta er hærri en hér á landi og ræktun á margan hátt auðveldari. Jafnframt á þessi ræktunaraðferð einnig harðari andstæðinga í þessum löndum. Greinin tekur að vísu mið af viðhorfum í Danmörku, en eigi að síður á meginefni hennar við hvar sem er. Efni er dregið örlítið saman á stöku stað. Gefum Georg Kovacs orðið. „Bóndi verður leiður á að vinan á býli sínu og fer að kenna latínu í menntaskóla. Það gengur hörmu- lega. Eigi að síður skrifar hann greinar og bækur um rétta notkun á máli Ciceros, þar sem hann sker málspekinga háskólans niður við trog og kallar þá fávísa einfeldn- inga. Er þetta ómögulegt? Já, þetta er skólabókardæmi um fjarstæðukenndan málflutning. En hvers vegna er hið gagnstæða allt að því eðlilegt. Ég á hér við það þegar latínukennari snýr sér að landbúnaði — auðvitað með lífrænni ræktun. Þegar landbúnað- ur er annars vegar er svo komið að aular fyrirfinnast ekki — nema að mati sumra: meðal þeirra sem vinna við hann ... Maðurinn má ekki vænta ölmusu frá náttúrunni. Vökvun, framræsla, vélvæðing, jurtakynbætur, notkun jurtanær- ingarefna og varnarefni gegn jurtasjúkdómum — öll þessi atriði grípa inn í gang náttúrunnar og eru án undantekningar áfangar í sigurgöngu mannsins gegn eymd og hungursneyð. Nokkrir óraun- hæfir draumóramenn ganga svo langt að þeir vilja gefa illgresinu sinn upphaflega sess og að akrar og tún beri fjölbreytta liti til að gleðja borgarbúa þegar þeir fara út að aka um helgar. Sá landbúnaður sem viss hópur manna hampar mest heitir nú vist- fræði (Ökologi). Hugtakið hefir í raun allt aðra og virðingarverðari merkingu, en er ekki verndað með lögum. I flestum tilvikum er vistfræði búskapur samkvæmt túlkun þessara manna sama og svokölluð lífræn ræktun, þar sem það nafn hljómar vel. Hér er nauðsyn að rekja söguna nokkru nánar. Rudolf Steiner sem að jafnaði er talinn trúarbragða- heimspekingur, eða launspeking- ur, setti fram ýmsar kenningar varðandi þessi efni ári fyrir dauða sinn, þ. e. 1924. Þess er að geta að Steiner var hvorki alinn upp við landbúnað né hafði lágmarks- menntun í landbúnaði. Hann hélt námskeið um þessi efni í Slesíu 1924, og voru það átta eríndi er báru titilinn „Framlag til endur- nýjunar landbúnaðar á andlegum vísindagrundvelli.“ Ekkert er auðveldara en að vitna í hvers konar staðleysur í þessu riti, þar sem höfundur leggur áherslu á hið leyndardómsfulla í ræktuninni. Um staðreyndir er fátt að finna. Kýrhornið sem á að stinga í jarð- veginn til að safna alheimsgeislum og auka á þann hátt uppskeru virðist vera þungamiðja kenning- arinnar. En það eru líka hópar manna í landbúnaði og garðyrkju, sem neita trúnni á kýrhornið og þess háttar trúarsetningum, en segjast fylgja vistfræðikenningu. Það FREYR — 945

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.