Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1984, Side 8

Freyr - 01.12.1984, Side 8
„Þá fann ég út að fótleggurinn væri mikilvægt bein til rannsóknar" Einu sinni í janúarmánuði árið 1981, ári eftir að dr. Halldór Pálsson lét af starfi búnaðarmálastjóra spurði ég hann að því hvort hann hefði ekki hugsað sér að skrifa æviminningar sínar. Hann neitaði því og kvað nóg vera á boðstólnum af þvílíkum bókum. Ég sagði eitthvað á þá leið við hann að á mörgu mundi hann luma, sem mönnum þœtti slœgur í og spurði hvort ég mœtti ekki skrifa upp eitthvað eftir hann frá námsárum hans ogfyrstu starfsárum. Halldór tók því vel ogfesti ég þá þessa þœtti á blað eftir frásögn hans, heima í stofunni hjá þeim Sigríði. Þar segir frá námi Halldórs heima og erlendis, drepið er á rannsóknir hans í Bretlandi og hér heima í vaxtarlífeðlisfrœði sauðfjár og loks segir frá fyrstu löngu hrútasýningarferð hans á íslandi. Þessir þœttir koma nú fyrir almenningssjónir. Þeir voru einkum skráðir með það í huga að bjarga frá glötun fróðleiksmolum um merkan mann sem öðrum fremur hefur mótað íslenska landbúnaðinn á þessari öld. 7,,, , , , , ^ Julius J. Damelsson. Dr. Halldór Pálsson á árum sínum sem sauðfjárrcektarraáðunautur. Ætlaöi aö veröa bóndi Við ræddum fyrst æskuár Halldórs og hvers vegna hann hefði valið búfræðina. Hann sagði: Eg hafði frá bernsku hugsað mér að verða bóndi. Um ferming- araldur hugði ég ekki á aðra skólagöngu en að taka búfræði- próf um tvítugsaldurinn, en svo fór, að ég hóf nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri, (sem síðar varð menntaskóli) mest fyrir hvatningu Huldu systur minnar. Hún var þá við nám í G. A. Móðir mín hvatti mig líka mjög til að nota tímann á veturna til náms fremur en til búverka, sem ekki gáfu mikið í aðra hönd. Ég hafði alltaf gaman af sveita- störfum og kveið fyrir að fara í skóla á haustin, sá eftir að geta ekki stundað fjárgeymslu á vetr- ym. En þegar í skóla var komið hverju sinni, þótt mér námið skemmtilegt og félagsskapurinn við bekkjarsystkinin hinn besti. Gagnfræða- og stúdentspróf Gagnfræðaprófi lauk ég 1930 og tók þá ákvörðun, að best væri að dunda næstu þrjá veturna við að læra undir stúdentspróf. Ég sá að ég gæti klofið það fjárhagslega með sumarvinnu minni og þeim arði af kindum mínum, sem þær gæfu af sér, en ég var svo heppinn að alast upp á stórri jörð og fá kaupið allt í kindafóðrum og auk þess leyfi til að hafa fleira fé í högum, sem ég keypti fóður á annars staðar. Var ekki lítið upp úr fé að hafa á verstu kreppuárunum? Jú, en það var ekki upp úr neinu að hafa neinsstaðar. Mér fannst notadrýgst að eiga sauði og reykja af þeim kjötið, þegar þeir voru orðnir nógu vænir. Á þeim árum var markaður fyrir gott hangikjöt bæði á Akureyri og í Reykjavík. Þá var nýtísku mat- vælaiðnaður eins og nú er stund- 928 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.