Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 28

Freyr - 01.12.1984, Blaðsíða 28
Árni G. Pétursson, hlunnindaráðunautur Sögunarstöðin að Miðfjarðarnesi á Strönd Á útmánuðum 1984 var sett niður stórviðarsög til úrvinnslu rekaviðar að Miðfjarðarnesi á Langanesströnd. í fasteignamati frá 1942 eru taldar 1404 jarðir með reka á landinu eða 21.6% þeirra 6498 jarða sem fasteignamatið tekur til. Þegar Búnaðarfélag íslands réð hlunnindaráðunaut á vordögum 1980 var eitt af skráðum verkefn- um hans að leggja á ráð um nýt- ingu rekaviðar og vekja athygli stjórnvalda á þjóðhagsgildi hans sem og annarra hlunninda bænda. Fljótlega var hafist handa í rekamálum. Á öllum rekajörðum berst á land nokkuð magn eldi- viðar og voru menn hvattir til að nota þann reka til upphitunar á íbúðarhúsnæði. Betri trjávið skyldi nýta á aðra vegu. Kom þá meðal annars til greina úrvinnsla rekaviðar, á sögunarstöð sem væri rekin á félagslegum grundvelli. Að áeggjan Búnaðarsambands Austurlands varð Búnaðarfélag Skeggjastaðahrepps í Norður- Múlasýslu fyrst til að ríða á vaðið í þessu tilliti. Framkvæmdir hvíldu á stjórn félagsins, þeim Þórarni Flaralds- syni á Þorvaldsstöðum, séra Sig- mari Torfasyni á Skeggjastöðum og Indriða Þóroddssyni í Mið- fjarðarnesi. t sögunarstöðinni á Strönd. Frá vinstri: Þórarinn Haraldsson, Þorvaldsstöðum; Indriði Þoroddsson, Miðfjarðarnesi og Árni Árnason í Höskuldarnesi. Úr sögunarstöðinni á Miðfjarðarnesi á Langanesströnd. Sigurbjörn Þorsteinsson á Hellulandi við hjólið. Árni Árnason í Höskuldarnesi á Sléttu og stjórn Búnaðarfélags Skeggjastaðahrepps fylgjast með (Ljósm. með þessari grein tók Árni G. Pétursson). Búnaðarsamband Austurlands, Samband sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi, Búnaðarfélag ís- lands, Byggðasjóður og Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins veittu og nokkra aðstoð við að hrinda málinu í framkvæmd. Vélsmiðjan Oddi á Akureyri undir leiðsögn og útfærslu Torfa Þ. Guðmundssonar forstjóra, smíðaði stórviðarsögina, en Torfi er frá Ófeigsfirði á Ströndum, fjölþættri hlunnindajörð, og þaul- kunnugur rekamálum. Þriðjudaginn 3. júlí sl. fór ég ásamt Árna Árnasyni bónda í Flöskuldarnesi á Sléttu austur á Langanesströnd að skoða sögun- arstöðina. Árni í Nesi hefur unnið við smíðar og á trésmíðaverkstæði að stórum hluta allt sitt líf, og á seinni árum hefur hann unnið mikið úr rekaviði. Hann gjör- þekkir umbúnað sögunarvéla, og sagði til á staðnum um lagfæringu á smávindingi, sem var á stýri- borði sögunarbekksins. í upphafi var ætlunin að byggja sérstaklega yfir sögunarstöðina, en frá því var horfið, þar sem fyrir hendi var stór ónotuð fjárhúsa- bygging að Miðfjarðanesi á Strönd. Sögin var sett niður í fjár- húshlöðuna. Þar er rúmt athafnar- svæði, og góð geymsla fyrir unn- inn við í fjárhúsum. Langanesströnd er ekki eitt af stærstu rekasvæðum landsins. Hins vegar er ekki frágangssök að sækja timbur á Langanes og í Þistilfjörð, eða flytja timbur það- an til sögunar á Strönd. Þetta mun vera til athugunar hjá bændum þar um slóðir, og fæst 948 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.