Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1984, Síða 31

Freyr - 01.12.1984, Síða 31
Ritfregnir Smalamennska og ást Guðmundur Hernharðsson Frá Ástúni Smalamennska og ást Sögur og dulrznar sagnir hóðan og heiman I Frey hefur borist ritið „Smala- mennska og ást, sögur og dulræn- ar sagnir héðan og heiman“ eftir Guðmunds Bernharðsson frá Ástúni á Ingjaldssandi í Vestur- ísafjarðarsýslu. Guðmundur er nú 85 ára að aldri. Hann var bóndi í tæpa hálfa öld, en eftir að hann var kominn yfir áttrætt og sestur í helgan stein fór hann að vinna að þessari bók. Aðalefni bókarinnar er annars vegar frásagnir af huldufólki og þar með kynnum höfundar af því. Hins vegar eru frásagnir af ferðum Guðmundar til útlanda og dvöl hans þar. Þetta efni er allt ljóslif- andi fram sett og ber merki hinnar jákvæðu lífsskoðunar höfundar. Hins vegar er prófarkalestri á bókinni ábótavant. Útlendingar, sem til þekkja, furða sig á því hversu margir hér á landi leggja fyrir sig skriftir. Bók Guðmundar er dæmigerð fyrir þá alþýðumenningu sem lifir hér á landi þar sem maður sem unnið hefur hörðum höndum langa ævi tekur sig til og skrifar bók um hugðarefni sín. Bókin er til sölu hjá Búnaðarfé- lagi íslands og hjá höfundi, en hann býr að Hátúni lOa í Reykjavík. Verð hennar er kr. 350. Bréf til blaðsins_______ Tilbúinn áburöur og búskapur Búskaparreynsla hefir fært athug- ulum bændum þá vitneskju að beztu grasár fylgi í kjölfar hlýjustu sumra, næsta ár eða næstu, eitt til tvö. Ég er hættur búskap, en ef ég hefði staðið í þeim sporum að panta mér áburð til næsta vors, þá ályktaði ég: Ég panta 20 prósent minni áburð vegna hins hlýja sum- ars 1984. Fleiri stoðir styðja að vísu þá ályktun: Að draga úr að- föngum eftir mætti samhliða minnkandi bústofni. Sú ástæða er að vísu til enn nákvæmari yfirveg- unar hvers bónda. Þessu varpa ég „á skjáinn“ til umhugsunar — ekki sem fyrirmælum. Jónas Pétursson. Molar Mjólkurframleiösla ársins 1984 stefnir í 109 milljónir lítra. Fyrstu 10 rnánuði þessa árs var innvegin mjólk hjá mjólkursam- lögunum 93,8 milljónir lítra, en það var 2,82% meira en sömu mánuði 1983. í fyrra var innvigtunin allt árið rétt um 106 milljónir lítrar. í síð- asta mánuði reyndist innvigtun vera 8,15 milljónir lítrar, en í október í fyrra tóku mjólkursam- lögin á móti 8,13 milljónum lítra. Það var aðeins hjá tveim mjólk- urbúum umtalsverð aukning í innveginni mjólk miðað við októ- ber 1983, en það var á Sauðár- króki og í Búðardal. Annarsstaðar var frekar um samdrátt að ræða. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var tekið á móti 0,29% minna nú en í fyrra og hjá Mjólkursamlagi KEA 0,56% minna. Hjá mjólkursam- laginu á Húsavík var samdráttur 1,8%. Sæmileg sala hefur verið á flest- um mjólkurafurðum það sem af er þessu ári, en þó heldur minni en á sl. ári, einkum í mjólk, skyri og smjöri. Nýmjólkursala hefur nokkuð dregist saman, eða um 4%, en aukning orðið í sölu léttmjólkur um 13% og einnig í undanrennu um 5,9%. Heildarsala í nýmjólk á þessu ári verður um 44 milljónir lítrar. Mjög mikil aukning hefur orðið í sölu á jógurt, eða um 24%, en aftur á móti samdráttur í sölu á skyri um tæp 11%. Nokkur birgðaaukning hefur orðið í smjöri. Um síðustu mánaða- mót voru til 302 tonn af smjöri, en það eru 109 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. Nokkur sam- dráttur var í smjörsölunni, en veruleg aukning í sölu á smjörva. Þá var aukning í framleiðslu á ostum um 28%. Einnig var aukning í sölu þeirra, þá hafa verið flutt út rúmlega 566 tonn af ostum. Birgðir af ostum eru svipaðar nú og á sama tíma í fyrra. U.þ.l. FREYR — 951

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.