Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 34
STÖRF OG STIMFSM6NN
Gunnar Guðmundsson var ráðinn
nautgriparæktarráðunautur hjá Bún-
aðarfélagi íslands frá 1. júní 1994.
Verkefni hans verða einkum fóðrun
og hirðing nautgripa.
Gunnar verður með skrifstofu-
aðstöðu hjá Bændaskólanum á
Hvanneyri, síma 93-70000, á skrif-
stofutíma. Auk þess verður hann á
skrifstofu BI einn dag í viku, jafn-
framt því sem unnt er að koma þar
skilaboðum til hans, í síma 91-
630300.
Gunnar var framkvæmdastjóri
Afurðasviðs Kaupfélags Borgfirð-
inga í Borgarnesi árin 1989-1994 og
fóðurráðunautur hjá BÍ árin 1986-
1989.
Alexander Þórisson var ráðinn
framkvæmdastjóri Samstarfshóps
um sölu á lambakjöti frá 1. maí
1994.
Alexander er viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands árið 1985 og
rekstrarhagfræðingur frá University
of Central Florida árið 1987.
Alexander starfaði áður sem sölu-
og markaðsstjóri hjá Smjörlíki - Sól
hf„ auk þess sem hann hefur sinnt
ráðgjafarstörfum.
Alexander tók við starfi af Birni
Jónssyni sem er nú markaðsstjóri
hjá Kjötumboðinu hf. (Goða).
Skrifstofa Alexanders er í Bænda-
höllinni í Reykjavík, sími 91-
630300.
Guðmundur Jóhannesson var ráð-
inn héraðsráðunautur hjá Bs. Austur-
Skaftfellinga, með aðsetur á Rauða-
bergi á Mýrum, frá 15. ágúst sl.
Guðmundur er stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð ár-
ið 1987, búfræðingur frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri árið 1990 og
búfræðikandidat frá sama skóla árið
1993.
Guðmundur er frá Jörva í Kol-
beinsstaðahreppi.
Sambýliskona hans er Halla Eygló
Stefánsdóttir, búfræðikandidat.
Halla Eygló Stefánsdóttir var ráð-
in héraðsráðunautur í 75% starf hjá
Bs. Austur-Skaftfellinga með aðset-
ur á Rauðabergi á Mýrum trá 15.
ágúst sl.
Halla er stúdent frá Menntaskól-
anum við Sund árið 1987, búfræð-
ingur frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri árið 1988 og búfræðikandidat
frá Búvísindadeild skólans árið
1993.
Halla er uppalin í Mosfellsbæ en
er ættuð frá Tröðum í Hraunhreppi í
móðurætt og Hofströnd á Borgar-
firði eystra í föðurætt.
Sambýlismaður hennar er Guð-
mundur Jóhannesson, búfræðikandi-
dat.
Ólafur Ingi Sigurgeirsson var
ráðinn kennari og rannsóknarmaður
í fiskeldi við Bændaskólann á Hól-
unt frá I. september sl.
Ólafur er stúdent frá ML árið
1984, lauk BS próft í líffræði frá
Háskóla íslands árið 1987 og Cand.
Scient. prófi í líffræði með í fiskalíf-
eðlisfræði, (Aquaculture) sem aðal-
grein.
Ólafur er frá Grund í Hruna-
mannahreppi. Kona hans er Sigríður
Bjömsdóttir, dýralæknir.
Sigríður Björnsdóttir var ráðin frá
1. september 1994 að Bændaskól-
714 FREYR - 19 94