Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 32

Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 32
Tíðindi af tölvumálum eftir Jón Baldur Lorange, forstöðumann tölvudeildar BÍ Ýmis tíðindi eru á sviði tölvumála landbúnaðarins og skal nú rakið það helsta sem snertir tölvudeild Búnaðarfélags íslands. Búnaðarfélag íslands hefur sett á laggimar tvo samráðshópa um for- ritun. Samráðshópur um forritun í þágu jarðræktar og jarðræktarleið- beininga var skipaður í september og hefur það verkefni með höndum að leggja á ráð um gerð forrita fyrir leiðbeiningar í jarðrækt, svo sem áburðarleiðbeiningar o.fl., sem henta þykir hvort sem er fyrir bændur eða ráðunauta sérstaklega. Hópurinn mun kynna sér hvað liggur fyrir á þessu sviði hérlendis og í nágranna- löndunum og hugsanlega henti ís- lenskum aðstæðum. Þá verður eitt af verkefnum hópsins að fylgjast með þeirri forritagerð, sem ákveðið yrði að ráðast í. I samráðshópnum eru Guðmundur Helgi Gunnarsson, ráðunautur á Akureyri, Hjörleifur Ólafsson, bóndi á Fossi, Hruna- mannahreppi, Kristján Bjarndal Jónsson, ráðunautur á Selfossi, Ámi Snæbjörnsson og Óttar Geirsson, ráðunautar BI og Jón Baldur Lor- ange, forstöðumaður tölvudeildar, sem mun leiða hópinn. Samráðshópur um forritun í sauð- fjárrækt var skipaður í byrjun sum- ars og er samráðsvettvangur notenda Fjárvíss, Búnaðarfélagsins og bún- aðarsambanda um áframhaldandi þróun á forritinu Fjárvís. í hópnum eru Sólrún Ólafsdóttir, bóndi á Kirkjubæjarklaustri II, Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur BÍ, Gunn- ar Þórarinsson, ráðunautur f Vestur- Húnavatnssýslu, Ólafur Dýrmunds- son, ráðunautur BÍ og Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeild- ar BI. Einn fundur hefur verið haldinn þar sem farið var ítarlega yfir forritið Fjárvís og hvaða verk- liðir skyldu vera í næstu útgáfu af forritinu. Mæsta útgáfa Fjárvíss verður númer 1,5 og er stefnt að því að hún komi út um miðjan nóvem- ber nk. í henni verður m.a. unnt að fá skýrsla um æviferil gripa og verður þá hægt að lesa inn eldri Jón Baldur Lorange. skýrsluhaldsupplýsingar úr gagna- safni BÍ, fjárbók fyrir ákveðið ár (sambærilegt og í skýrsluhaldi nú) o.fl. Viðræður við Hjálmar Ólafs- son, forritara Fjárvíss, hafa staðið yfir vegna þessarar vinnu. Þá hefur verið keypt forritið DanMink frá Danmörku fyrir loð- dýrarækt. Ætlunin er að nokkrir loðdýrabændur skrái skýrsluhald sitt á eigin einmenningstölvu og er starfsfólk tölvudeildar að kynna sér forritið þessa dagana. Guðlaug Ey- þórsdóttir hefur haft umsjón með skýrsluhaldinu í loðdýrarækt og mun áfram, eins og áður, þjónusta þá loðdýrabændur sem eru þátttak- endur í sameiginlegu skýrsluhaldi í greininni. Svínabændur hafa einnig látið þróa forrit fyrir svínaframleiðslu, sem Tölvumyndir h.f. hafa samið. Forritið heitir einfaldlega Svín og er Windows forrit og hefur verið vand- að vel til verksins. Tölvudeildin er að kynna sér forritið og er ætlunin að smærri svínaframleiðendur geti sent inn gögn til vinnslu hjá Bún- aðarfélaginu. Ráðunautur í svína- rækt er Pétur Sigtryggsson. Forritið Einka-Fengur, fyrir hrossaræktendur, hefur selst jafnt og þétt og hafa yfir fimmtíu eintök verið seld og þar af fimm til útlanda. Forritun á útgáfu 0,8 stendur nú yfir og með þeirri útgáfu fylgir fyrsta gagnauppfærslan til notenda. Frá því gagnasafn Einka-Fengs var keyrt út úr aðalgagnasafni Fengs þann 10. febrúar s.l. hafa rúmlega 5 þúsund hross bæst í gagnasafnið og upplýs- ingum um annað eins af hrossum hefur verið breytt. Með gagnaupp- færslunni fylgja allir kynbótadómar sumarins og nýtt kynbótamat. Ný útgáfa (0,8A) af forritinu Odda kom út í september. Oddi er forrit fyrir afkvæmarannsóknir á hrútum og fyrir mat á líflömbum. Á þessu ári hafa forritaramir Þráinn Vigfússon og Valdimar Tryggvason unnið að gerð forrita fyrir samanburð á bókhaldsgögnum og áætlunargerð fyrir búrekstur. Forritin verða sjálfstæð Windows forrit, skrifuð í Visual Basic, en nýta sér bókhaldsgögn úr bókhaldsforrit- inu Búbót. Prófunarútgáfur verða tilbúnar innan skamms. Fjári, félag um íslenska fjárhund- inn, hefur leitað til Búnaðarfélags Islands og óskað eftir þjónustu við skýrsluhald í hundarakt. Einnig hefur Smalahundafélag íslands beð- ist þess sama. Búnaðarfélagið hefur hafið samstarf við þessa aðila og vinna er komin á fullt með gerð for- rits fyrir skýrsluhald í hundarækt. Forritið verður byggt á grunni for- ritsins Feng, sem heldur utan um skýrsluhald í hrossarækt. Aðalverk þessa nýja forrits verður útgáfa vandaðra og viðurkenndra uppruna- vottorða, sem og uppbygging gagna- safns um ætterni hunda og eigin- leika. 712 FREYR - 19'94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.