Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 24

Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 24
Auðhumla 594 Vel heppnuð landbúnaðar- sýning a Hrafnagili Landbúnaðarsýningin Auðhumla ’94 á Hrafnagili sem haldin var dagana 20.-27. ágúst sl., tókst með miklum ágætum. Hún var fjölbreytt og vel skipulögð og veður var gott flesta sýningardagana. Fjöldi fólks sótti sýninguna úr öllum landshlut- um, t.d. voru dæmi þess að Sunn- lendingar færu Sprengisand og Kjalveg á leið sinni norður í Eyja- fjörð. Hingað til hefur það tíðkast hér á landi að félög og stofnanir hafi staðið fyrir þeim landbúnaðarsýn- ingum sem haldnar hafa verið. Nú var brotið blað í þá venju og ein- staklingar höfðu framkvæmd og forystu um þessa sýningu með glæsilegum árangri. Freyr átti tal fyrsta dag sýningarinnar við Jóhann- es Geir Sigurgeirsson, bónda |og alþingismann á Öngulsstöðum, ann- an þeirra manna sem áttu frumkvæði að landbúnaðarsýningunni. - Við Hreiðar Hreiðarsson veit- ingamaður í Vín í Eyjafjarðarsveit hittumst héma við bensíndæluna á laugardagsmorgni fyrir réttu ári, sagði Jóhannes og þá viðraði Hreið- ar þessa hugmynd við mig hvort ekki ætti að drífa hér upp landbún- aðarsýningu. Hann var búinn að drepa á það við einhverja fleiri áður, en ekki fengið þær undirtektir sem hann hefði kosið. Það má kannski segja að upphafið hafi verið þetta samtal við bensíndæluna. Fram- haldið þróaðist út frá því. Frá upp- hafi höfðum við gott og náið sam- starf við sveitarstjóm Eyjatjarðar- sveitar og Búnaðarsamband Eyja- fjarðar, þó svo að málin æxluðust þannig að þeir aðilar kæmu ekki að sem beinir þátttakendur. Undirbúningsvinna hófst svo að fullu um sl. áramót. Við höfðum þá stofnað félagið „Lifandi land hf.“ og réðum Vöku Jónsdóttur á Punkti í þjónustu þess. Hún var í hálfu starfi fram í maí og í fullu starfi síðan. 704 FREYR - 19'94 Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Framtak tveggja fjölskyldna Jóhannes Geir sagðist hafa unnið að þessu máli í allt sumar með konu sinni Kristínu Brynjarsdóttur og líka þau hjónin Hreiðar og Þórdís Bjarnadóttir eins og þau hefðu getað með sínum rekstri. Þannig að sýningin er framtak þessara tveggja fjölskyldna? Já, sýningin okkar heitir Auð- humla ’94, og hún er haldin undir einkunnarorðunum „Lifandi land“ og félagið sem við stofnuðum um hana heitir Lifandi land hf. Jóhannes sagði að undirtektir manna og fyrirtækja hefðu yfirleitt verið góðar við hugmyndina. Að vísu væru erfiðir tímar hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum og að það hafði þurft að ýta við sumum þeirra. Það útheimti geysilega vinnu að hrinda svona verkefni í framkvæmd. Jafnvel þó að menn hefðu áhuga og vildu taka þátt, hefði þurft að fylgja því mjög vel eftir til þess að ná þessu saman. I sýningarskránni voru skráðir um 80 sýnendur, þar af voru nokkrir sem eru skráðir tvisvar, bæði á inni- og útisvæði þannig að raunveruleg tala sýnenda var um 70. Til viðbótar Vaka Jónsdóttir. voru svo margir sem þama komu fram með listmuni, málverk á mál- verkasýningu, heimaunna muni frá „Högum höndum“, samtökum áhugafólks um heimilisiðnað og muni aldraðra sem þar voru sýndir. Tala sýnenda var því langt á annað hundrað. Fyrr á árum voru haldnir bænda- dagar hér í Eyjafirði, sagði Jóhannes Geir, og mjög myndarlega að þeim staðið. Þá voru oft á tíðum sýndar vélar og búfénaður en ekki í þessu formi, því sem menn hafa kallað landbúnaðarsýningu hér á landi. Þetta mun því vera fyrstu raun- verulega landbúnaðarsýningin hér norðan fjalla sem haldin hefur verið með þessu sniði. Er þetta ekki lfka fyrsta landbún- aðarsýningin sem haldin er að frumkvæði einstaklinga? Ég býst við því og það er kannski merki um breytta tíma. Og við höf- um lært að það hefur bæði kosti og galla. Við höfum gert ýmsa hluti með okkar fólki ódýrara heldur en ef við hefðum þurft að kaupa allt að á fullu verði, til að mynda öll vinna hér við útisvæði og mikið af und- irbúningsvinnunni er þannig að fyrir

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.