Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 36
Þór hf. gengur til samstarfs við
John Deere
Ford Motor Company hœttir framleiðslu traktora
Þór hf. hefur verið umboðsaðili fyrir Ford traktora og búvélar í 28 ár á íslandi og
selt á tólfta hundrað traktora á því tímabili. Nú hefur það gerst að Ford Motor
Company hefur selt traktorverksmiðjur sínar til Fiat samsteypunnar og hœtt allri
framleiðslu traktora.
Slarfsmenn Þór hf., frá vinstri: Karl Geir Arason, Oddur Einarsson, Baldur
Þorsteinsson og Bjarni Björnsson.
Fiat mun fyrst um sinn halda
áfram framleiðslu á núverandi gerð-
um Ford traktora en notkun Ford
vörumerkisins takmarkast við örfá
ár. Má því segja að Ford og Fordson
traktorar heyri brátt sögunni til.
Þór hf. sem er einn stærsti inn-
flytjandi búvéla á íslandi hefur því
gengið til samstarfs við stærsta og
virtasta framleiðanda traktora í dag,
John Deere.
John Deere er bandarískt fyrir-
tæki, sem er sérhæft í smíði traktora
og annarra búvéla, m.a. þreskivéla,
rúllubindivéla o.fl. búvéla. John
Deere traktorar hafa um áratuga
skeið verið leiðandi á markaðnum í
öllum helstu landbúnaðarlöndum
heims, m.a. með allt að 70% mark-
aðshlutdeild í Bandaríkjunum. Á
Evrópumarkaði hefur John Deere
verið að sækja mjög á undanfarin ár,
og er nú meðal stærstu traktorfram-
leiðanda álfunnar.
Að sögn Einars Þorkelssonar for-
stjóra Þór hf. hefur John Deere
fyrirtækið frá upphafi lagt megin
áherslu á vöruvöndun og rekstrar-
öryggi framleiðslu sinnar, og hefur
þessi stefna fyrirtækisins skilað því
vel áleiðis, því að í dag er John
Deere eini traktorframleiðandi
heims sem ekki á við einhvers konar
fjárhagsörðugleika að etja. Fyrir-
tækið horfir björtum augum fram á
við og hefur mikla trú á framtíðinni.
í því skyni hefur John Deere lagt
mikla fjármuni á undanförnum árum
í uppbyggingu fullkomnustu traktor-
verksmiðja heims, m.a. í Evrópu,
ásamt því að fjárfesta í framþróun
traktora sinna. I dag er svo komið að
John Deere býður tæknilega full-
komnustu og þróuðustu traktora sem
völ er á.
John Deere framleiðir traktora í
stærðunum 55 til 225 hö. Þessar
vikurnar er Þór hf. að kynna 6000
línuna af traktorunum frá John
Deere í stærðunum frá 75 til 120
hö. Þessar vélar kynnti Þór hf. í
fyrsta sinn á landbúnaðarsýningunni
á Hrafnagili í Eyjarfirði í ágústlok
sl. og vöktu þær mikla athygli og
almenna hrifningu bænda. Einkum
vakti grindarbygging traktoranna
sérstaka eftirtekt, en almennt er
álitið að grindarbygging verði nauð-
synleg á stærri véluni með tilkomu
þungra tengitækja og öflugri mokst-
urstækja.
Undirbúningur að innflutningi
John Deere traktora til íslands af
hálfu Þór hf. hefur staðið í nokkra
mánuði, og sl. mánuð hafa vélamar
verið sýndar á nokkrum stöðum á
/ John Deere traktornum er olíukœld
fjöldiskakiiplinf! sem er viðhaldslaus og
endist lengur en aðrar traktorskúpl-
ingar.
716 FREYR- 19'94