Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 39
3. tafla. Æskilegt innihald FEs handa smógrísum.
Aldur smágrísa
Yngri en 3ja vikna 3-5 vikna 5 vikna og eldri
FES í 1 kg af fóðri 1.20 1,15 1,10
g meltanlegt hráprótein, hámark 190 180 170
g meltanlegt lysin í FE* g meltanlegt methionin '' + eystin i FES 10,5 10,0 9,5
5,8 5,6 5.4
g meltanlegt treonin í FES 6,0 5,6 5,3
1) Methionin lágmark 50%.
Heimild: 0konomisk svinefodring 26/1983.
4. tafla. Æskileg samsetning smágrísafóðurblanda.
Yngri en 3ja vikna Aldur smágrísa 3-5 vikna 5-10 vikna
FES í kg, lágntark 1,20 1,15 1,10
Meítanleiki hrápróteins, % 94 90 85
Próteinfóður úr dýraríkinu,% 100 50 25
% tréni. hámark 2.5 3.0 3,5
% fita 10 8 5
rennudufti, 3 kg þurrgeri og 2 kg
hörfræi.
Þar sem næringarþörf smágrísa er
mikil verður fóðrið að vera orkuríkt,
auðugt af lífsnauðsynlegum amínó-
sýrum og með litlu trénismagni.
Til að koma í veg fyrir melting-
artruflanir hjá smágrísum er nauð-
synlegt að nota auðmeltanlegt fóður,
t.d. fiskimjöl, fyrst eftir fráfærur en
síðar má smám saman nota fóður úr
jurtaríkinu, t.d. sojamjöl í stað fiski-
mjöls.
Hægt er að koma í veg fyrir margs
konar erfiðleika við fóðrun og um-
hirðu smágrísa ef eftirfarandi atrið-
um er sinnt:
I. Fyrirbyggja verður járnskort með
því að gefa smágrísunum járn-
meðal fljótlega eftir fæðingu.
Þegar grís fæðist hefur hann
lítinn forða af jámi, ca 30-50 mg,
en daglega notar hann ca 7 mg og
fær aðeins 1 mg úr móður-
mjólkinni á dag. Á þessu sést að
mikil hætta er á járnskorti ef
ekkert er að gert. Öruggast er að
sprauta grísinn með járnmeðali í
nárann eða hnakkann þegar hann
er ca 3ja daga gamall.
2. Gotstíur verða að vera þurrar,
hlýjar og rúmgóðar. Súgur má
ekki vera. Bera verður undir grís-
ina nóg af sagi eða heyi til þess
að þeir hafi mjúkt bæli til að
liggja í. Athuga verður vel
rakastig loftsins í gotstíunum en
það má helst ekki fara yfir 70%.
Þungt og rakt loft virkar sem eit-
ur á smágrísina.
3. Aðeins má nota fyrsta flokks
fóður handa gyltunr og smágrís-
um. Forðast skal snöggar fóð-
urbreytingar.
4. Strax þegar smágrísirnir eru
orðnir vikugamlir verða þeir að
hafa aðgang að nýju og ekki
sárköldu vatni. Vatnsþörfin eykst
að sjálfsögðu eftir því sem grís-
irnir verða eldri og sérstaklega
þegar þeir fara að éta þurrfóðrið.
Skortur á vökva veldur niður-
gangi og óhreinni húð. Gera skal
ráð fyrir að það þurfi 2,5-3,0 lítra
af vökva fyrir hvert kg af
þurrfóðri. Vatnsventlarnir verða
að gefa frá sér ca 1 lítra af vatni á
mínútu.
i i i i i i ii i i i i i i i ii i i'ii i n
Með kaupum á endurunnu G V mottunni stuðlarþú
að minni mengun og bættri
nýtingu auðlinda jarðar. hhh
Póstsendum um land allt.
GÚMMÍVINNSLAN HF.
Rétfarhvammi 1, Akureyri. Sími 96-12600
I I I I I I I » I I I I ........